Upp­gjörið: Kefla­vík - Grinda­vík 99-105 | Grinda­vík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
pargo
Vísir/Hulda Margrét

Grindavík sigraði Keflavík í hörku spennandi Suðurnesjaslag í kvöld, 99-105. Leikurinn var að mestu leyti jafn milli liðanna en afhroð í öðrum leikhluta varð Keflavík að falli.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu að áhorfendur fengju allt fyrir peninginn sinn. Keflavík byrjuðu á fyrstu þriggja stiga körfu leiksins en Jeremy Pargo nýi/gamli leikmaður Grindavíkur, svaraði þá einnig með þristi.

Grindvíkingar náðu undirtökunum á fyrstu mínútum leiksins og komust í níu stiga forystu þegar Mortensen hitti úr tveimur þriggja stiga skotum í röð á meðan sóknarleikur Keflavíkur hikstaði. Daníel Guðni, þjálfari Keflavíkur, tók þá leikhlé og í kjölfarið náðu heimamenn góðu áhlaupi sem skilaði þeim þriggja stiga forystu.

Jordan Semple minnkaði muninn niður í eitt stig með þristi og tveggja stiga körfu þegar fyrsti leikhluti var flautaður af, 24-23.

Annar leikhluti einkenndist af miklum hita, bæði á vellinum og hliðarlínunni, en þjálfarar liðanna voru bersýnilega ósáttir með dómgæslu leiksins. Grindvíkingar náðu þá yfirhöndinni í leikhlutanum og fór með 16 stiga forystu inn í hálfleikinn.

Keflvíkingur unnu þriðja og fjórða leikhluta en það dugði ekki til og lokatölur því, 99-105.

Atvik leiksins

Ekkert sérstakt sem stendur upp úr en það var hiti í þessum leik sem gerði hann ansi spennandi.

Stjörnur og skúrkar

Jordan Semple var stigahæstur hjá Grindavík með 27 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar..

Jeremy Pargo kom þar næstur með 24 stig, 4 fráköst og 8 stoðsendingar. Frábær innkoma í þessum leik hjá Pargo sem samdi við liðið aftur á dögunum.

Mirza Bulić var þá stigahæstur hjá Keflavík með 22, 10 fráköst og 3 stoðsendingar.

Stemning og umgjörð

Það var alvöru stemning í þessum Suðurnesjaslag og stúkan full. Það mátti þó greina talsverðan mun á stuðningi liðanna. Grindvíkingar létu mun meira fyrir sér fara í stúkunni á meðan heimamenn voru heldur hljóðlátari.

Dómarar

Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Birgir Örn Birgisson stóðu vaktina á parketinu í kvöld. Leikurinn reyndi á dómarateymið enda var mikill hiti í húsinu. Mörg atriði þar sem þjálfarar og leikmenn létu ítrekað óánægju sína í ljós.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira