Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. febrúar 2026 22:07 Antoine Griezmann ullar á Börsunga. Angel Martinez/Getty Images Atlético Madrid er komið hálfa leið áfram í úrslit spænska konungsbikarsins eftir 4-0 stórsigur gegn Barcelona í fyrri undanúrslitaleik liðanna. Öll fjögur mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik.
Liðin mætast aftur í byrjun næsta mánaðar en Atlético er í mjög góðri stöðu eftir úrslit kvöldsins. Börsungar voru langt frá því að vera sjálfum sér líkir og skíttöpuðu. Leikurinn byrjaði brösuglega fyrir Barcelona því strax á 6. mínútu skoraði Eric García sjálfsmark. Áföllin héldu áfram að dynja, Antoine Griezmann tvöfaldaði forystuna og Ademola Lookman skoraði sitt fyrsta mark fyrir Atlético til að koma liðinu 3-0 yfir. Atlético fékk fleiri færi og hefði hæglega getað skorað meira gegn hárri varnarlínu Barcelona en tókst það ekki alveg strax. Hansi Flick áttaði sig á því að lærisveinar hans væru í alvöru veseni. Þýski þjálfarinn brá á það ráð að skipta miðjumanninum Marc Casadó út fyrir framherjann Robert Lewandowski, en það breytti litlu. Julián Alvarez skoraði fjórða mark Atlético í uppbótartíma fyrri hálfleiks og heimamenn fóru dansandi inn í búningsherbergi. Lewandowski kom boltanum síðan í netið fyrir Barcelona í upphafi seinni hálfleiks en markið fékk ekki að standa, eftir sjö mínútna VAR skoðun fannst eitthvað varhugavert. Barcelona reyndi að bæta úr stöðu sinni en Atlético var ekki á því að fá á sig mark og varði forystuna vel. Undir lok leiks bætti Eric García rauðu spjaldi við sitt sjálfsmark fyrir Barcelona og lauk þessum leik með versta hætti.
Spænski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Sjá meira