Náttúrustofur: lykilstofnanir skornar niður Hulda Birna Albertsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 15:00 Náttúrustofur gegna lykilhlutverki í rannsóknum, vöktun og þekkingaruppbyggingu á íslenskri náttúru. Þær eru jafnframt ein árangursríkasta byggðaaðgerð sem ríkið hefur yfir að ráða: skapa störf fyrir háskólamenntað fólk, styrkja faglegt umhverfi á landsbyggðinni og tryggja að þekking á náttúru landsins verði til þar sem hún skiptir mestu máli, í nærumhverfinu. Því vekur undrun að í fjárlögum ársins 2026 er grunnframlag ríkisins til náttúrustofa lægra en nokkru sinni fyrr. Ríkisframlag á hverja náttúrustofu lækkaði verulega og nemur niðurskurðurinn ríflega 15% frá fyrra ári, að teknu tilliti til verðlags. Lögbundið mótframlag sveitarfélaga, sem nemur 30% af ríkisframlaginu, lækkar að sama skapi. Fyrir litlar og viðkvæmar stofnanir er þetta aðför að rekstrargrundvellinum, sérstaklega vegna þess að þetta kemur ofan á viðvarandi lágt grunnframlag ríkis frá því eftir fjármálahrunið (sjá graf). Þessi ákvörðun er í augljósu ósamræmi við nýútgefna stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 (Líffræðileg fjölbreytni – Stefna og markmið til ársins 2030-digital.pdf). Þar er lögð rík áhersla á að efla rannsóknir, vöktun, fræðslu og ráðgjöf og náttúrustofur eru sérstaklega nefndar meðal mikilvægustu fagstofnana landsins á þessu sviði, ásamt stórum ríkisstofnunum og háskólum. Í stefnunni er jafnframt kveðið á um að styrkja og samræma verkefni náttúrustofa til stuðnings sveitarfélögum og auka hlutverk þeirra í þágu markmiða Íslands um náttúruvernd og sjálfbæra nýtingu. Þessu til viðbótar má nefna að samkvæmt niðurstöðum starfshóps umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem starfaði á árinu 2024 og fór yfir starfsemi náttúrustofa, er almenn ánægja með þær jafnt í héraði og á landsvísu. Orðin eru skýr en aðgerðirnar segja annað. Þróunin er einnig óskiljanleg í ljósi þess að fjárveitingar til stofnana ríkisins á sama starfssviði hafa hækkað á undanförnum árum. Grunnframlag til náttúrustofa er enn um þriðjungi lægra en það var fyrir efnahagshrunið 2008 (sjá graf), á meðan aðrar stofnanir hafa byggt sig upp að nýju. Við forstöðumenn náttúrustofa höfum ekki fengið skýringar á þessu misræmi. Á landinu starfa átta náttúrustofur, dreifðar um allt land, með öfluga starfsemi á sviði rannsókna, vöktunar, fræðslu og ráðgjafar. Fjármunir sem lagðir eru til þeirra nýtast vel: ríkisframlagið ávaxtast strax um 30% vegna mótframlags sveitarfélaga og enn frekar þegar stofurnar sækja verkefni og styrki. Þetta er því hagkvæm og skilvirk fjárfesting. Niðurskurðurinn vinnur gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um byggðajafnvægi, þekkingarsamfélag og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Hann mun óhjákvæmilega draga úr rannsóknargetu og vexti náttúrustofanna og þar með faglegu baklandi náttúrurannsókna á landsbyggðinni. Náttúrustofur hafa ítrekað sýnt að þær skila miklu fyrir tiltölulega lítið fjármagn. Það er því bæði ósanngjarnt og óskynsamlegt að skera stöðugt niður fjármagn til þeirra. Hér er ekki verið að kalla eftir sértækum forréttindum, heldur einfaldlega jafnræði, stöðugleika og skynsemi í opinberri fjármögnun. Telji stjórnvöld náttúrustofur raunverulega mikilvægar, eins og þeirra eigin stefna segir til um, ætti það að endurspeglast í fjármögnun þeirra. Nú er mikilvægt að orð og verk fari saman. Ef markmið stjórnvalda um vernd líffræðilegrar fjölbreytni, byggðajafnvægi og eflingu þekkingarsamfélagsins eiga að ná fram að ganga, þarf það að endurspeglast í stöðugri og raunhæfri fjármögnun þeirra fagstofnana sem bera hitann og þungann af þeirri vinnu. Náttúrustofur eru hluti af þeirri grunnstoð. Án traustrar fjármögnunar verður erfitt að uppfylla þau markmið sem sett hafa verið fram. Með skýrum vilja og ábyrgri ákvarðanatöku er hins vegar vel mögulegt að tryggja að þær geti áfram sinnt sínu mikilvæga hlutverki, í þágu náttúrunnar, samfélagsins og framtíðar landsins. Fyrir hönd samtaka náttúrustofa (SNS), Hulda Birna Albertsdóttir, forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða og stjórnarformaður samtaka náttúrustofa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar