Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sindri Sverrisson skrifar 12. febrúar 2026 10:04 Vladyslav Heraskevych sýnir hjálminn sem IOC neitaði að samþykkja. Pabbi hans var miður sín þegar niðurstaðan lá fyrir. Samsett/Getty Mikil sorg ríkti við sleðabrautirnar í Cortina á Vetrarólympíuleikunum í dag, þegar tilkynnt var að búið væri að taka keppnisleyfið af hinum úkraínska Vladyslav Heraskevych. Hann hafði neitað að skipta út hjálmi sínum sem sýndi fórnarlömb stríðsins í heimalandinu.
Heraskevych hafði mætt á æfingar á leikunum með hjálminn og verið varaður við því að hann fengi ekki að keppa með hann. Alþjóðaólympíunefndin, IOC, sagði hjálminn stangast á við reglur Ólympíuleikanna um að ekki mætti vera með neinn pólitískan áróður á keppnisstað. Heraskevych hefur hins vegar setið við sinn keip og bent á að skautadansarinn Maxim Naumov hafi mátt halda á mynd af foreldrum sínum, sem létust í flugslysi, á meðan að beðið var eftir því að einkunn hans yrði birt. Kirsty Coventry, forseti IOC, felldi tár þegar hún ræddi við fjölmiðla eftir ákvörðunina um að vísa Heraskevych úr keppni.Getty/Richard Heathcote Tárin láku niður kinnar Kirsty Coventry, forseta IOC, þegar hún ræddi við fjölmiðla eftir að ákvörðunin um að vísa Heraskevych úr keppni var tilkynnt. Í tilkynningu frá IOC sagði: „Það var einlæg ósk IOC að herra Heraskevych tæki þátt. Þess vegna ræddi IOC við hann um að finna sem besta leið til þess að uppfylla ósk hans um að minnast íþróttafólks sem látist hefur eftir innrás Rússa í Úkraínu.“ Tillaga IOC var sú að Heraskevych myndi vera með svart armband, til að minnast hinna látnu, en við það vildi sleðakappinn ekki una. Því fór svo á endanum að IOC hefur nú bannað honum að keppa. Hjálmurinn hans sýndi íþróttafólk og vini Heraskevych, þar á meðal lyftingastelpuna Alinu Peregudova, hnefaleikamanninn Pavlo Ishchenko og íshokkímanninn Oleksiy Loginov.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira