Af hverju rekum við mörg smáríki í 250 þúsund manna samfélagi? Gunnar Salvarsson skrifar 12. febrúar 2026 08:16 Undantekningalítið, þegar minnst er á sameiningu sveitarfélaga, er fyrsti viðmælandi fjölmiðla bæjarstjóri. Einhver annar ætti auðvitað að taka samtalið, ekki einstaklingur sem gæti, ef af sameiningu yrði, misst embætti sitt og valdastöðu. Það hefur reyndar ekki í alvöru verið nein umræða um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um langt skeið, en það merkir samt ekki að rökin fyrir slíkri sameiningu hafi gufað upp. Hins vegar hafa milljarðar króna fokið út í vindinn í stjórnunarkostnað þeirra mörgu og misstóru sveitarstjórna sem um ræðir. Á höfuðborgarsvæðinu búa um 250 þúsund manns, eða 60–65 prósent íbúa landsins. Samt fara fjölmörg sjálfstæð sveitarfélög með stjórnsýsluvald á þessu tiltölulega litla svæði, hvert með sinn bæjarstjóra, eigin stjórnsýslu, pólitíska forystu og yfirbyggingu. Á evrópskan mælikvarða er þetta fámennt þéttbýlissvæði, en hér ríkja engu að síður mörg smákónga- og drottningaveldi. Heilbrigð skynsemi segir okkur að þessi skipan sé bæði óskilvirk og rándýr. Í ársreikningum sveitarfélaga má sjá að milljarðar króna fara árlega í það sem kallað er sameiginlegur kostnaður: miðlæga stjórnsýslu, fjármál, mannauðsmál, upplýsingatækni, lögfræði, innkaup, nefndir og ráð og skrifstofur kjörinna fulltrúa. Þetta eru nauðsynlegir þættir í rekstri sveitarfélags, en þurfa þeir að vera svona margir á sömu þúfunni? Þegar sama yfirbygging er rekin í hverju sveitarfélagi verður erfitt að halda því fram að það sé hagkvæm ráðstöfun almannafjár. Á sama tíma kvarta sveitarfélög undan þröngum fjárhag og draga úr þjónustu. Enginn heldur því fram að allur þessi kostnaður hyrfi með sameiningu á einni nóttu. En jafnvel hófleg hagræðing til lengri tíma gæti skapað verulegt fjárhagslegt svigrúm, sem næmu hundruð milljóna króna, ef ekki nokkrum milljörðum. Það eru fjármunir sem mætti nýta þar sem þörfin er augljós: í leik- og grunnskólum, í stuðningsþjónustu og á sviðum þar sem fámennari einingar eiga erfitt með að uppfylla sívaxandi kröfur. Rökin um skilvirkni vega þó ekki síður þungt en sparnaðurinn. Núverandi fyrirkomulag býður upp á endurtekinn ágreining milli sveitarfélaga um skipulagsmál, húsnæðisuppbyggingu og samgöngur. Ákvarðanataka tefst, ábyrgð dreifist og heildarsýn skortir. Sameinað sveitarfélag hefði eitt lýðræðislegt umboð til að móta stefnu fyrir allt svæðið, eina skipulagsstefnu, eina samgönguáætlun og skýrari forgangsröðun þar sem hagsmunir heildarinnar væru í forgrunni. Andstæðingar sameiningar benda réttilega á að slík breyting hafi ókosti: hættu á fjarlægð milli stjórnvalda og íbúa, að staðbundin sérkenni „litla sæta bæjarfélagsins” glatist og kostnaður við sameiningu sé líka fjárfrekur. Líkt og annars staðar þar sem sveitarfélög hafa sameinast koma tilfinningarökin ávallt til vera fyrirferðarmikil í umræðunni. „Ég er og verð Hafnfirðingur. Ég er og verð Seltirningur.” En þegar tilfinningarökin eru vegin á móti skilvirkni og milljarðasparnaði hljóma þau ekki sterk. Örnefni halda sér og íbúar halda áfram að tengja sig við bæjarfélagið sitt og hverfið sitt. Í grannríkjum hefur valddreifingu innan sameiginlegra sveitarfélaga verið mætt með hverfaráðum og öflugri nærþjónustu. Það er skiljanlegt að þeir sem stýra núverandi kerfi horfi með tortryggni á breytingar sem gætu haft áhrif á stöðu þeirra. En slík sjónarmið mega ekki ráða för. Spurningin sem íbúar höfuðborgarsvæðisins ættu að horfast í augu við er einföld: viljum við halda áfram að verja umtalsverðum fjármunum í sundurlausa stjórnsýslu eða sameina kraftana og nýta almannafé með ábyrgari og skilvirkari hætti? Í aðdraganda kosninga er tímabært að hefja þessa umræðu af festu og yfirvegun. Sameining sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu gæti verið rökrétt og ábyrg leið til að styrkja þjónustu, bæta ákvarðanatöku og nýta sameiginlega fjármuni okkar íbúanna betur til framtíðar. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Sveitarstjórnarmál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun