Um 300 börn ,,rænd“ á ári hverju Jón Pétur Zimsen skrifar 12. febrúar 2026 08:32 Gera foreldrar sér grein fyrir að einungis um 2% íslenskra nemenda ná efstu hæfniþrepum í náttúruvísindum samkvæmt PISA 2022? Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið 8–10%. Það þýðir að á Íslandi eru um 100 börn í hverjum árgangi með afburðahæfni í vísindum. Hlutfallslega ættu þau að vera um 400. Því vantar um 300 börn á ári í hóp þeirra sem skara fram úr. Auðvitað eru niðurstöður PISA ekki einn allsherjardómur en niðurstöður Íslands eru alger áfellisdómur. Hvað þýðir að vera á efstu hæfniþrepum? Þessir 15 ára nemendur geta til dæmis: unnið úr flóknum og óljósum upplýsingum, metið áreiðanleika gagna, dregið sjálfstæðar og gagnrýnar ályktanir, beitt þekkingu í nýjum og ókunnugum aðstæðum. Þetta eru nemendurnir sem síðar eru líklegri til að: leiða rannsóknir, þróa nýja tækni, skapa nýja þekkingu, og draga nýsköpunarvagninn. Hver ber ábyrgð á því að um 300 nemendur eru ,,rændir“ á ári hverju þessari afburðarhæfni? Ekki heyrist múkk frá þeim sem völdin hafa, stýra kerfinu og ákveða hvaða leiðir skulu farnar. Þögnin er ærandi. OECD hefur ítrekað bent á að sterk tengsl séu milli menntunar og langtímaframleiðni þjóða og bendir á að hætta sé á að minnsta kosti 5% samdrætti hvað framleiðni varðar eða um 250 milljarða árlega ef fram heldur sem horfir. Þjóðir sem ná ekki að rækta hæfileika sína dragast aftur úr í verðmætasköpun og samkeppnishæfni. Hvers vegna er staðan svona þar sem við höfum allar forsendur til að vera með eitt besta menntakerfi í heimi? Jöfnun niður á við er ekki hægt að réttlæta í nafni jöfnuðar. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skóla- og menntamál Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Gera foreldrar sér grein fyrir að einungis um 2% íslenskra nemenda ná efstu hæfniþrepum í náttúruvísindum samkvæmt PISA 2022? Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið 8–10%. Það þýðir að á Íslandi eru um 100 börn í hverjum árgangi með afburðahæfni í vísindum. Hlutfallslega ættu þau að vera um 400. Því vantar um 300 börn á ári í hóp þeirra sem skara fram úr. Auðvitað eru niðurstöður PISA ekki einn allsherjardómur en niðurstöður Íslands eru alger áfellisdómur. Hvað þýðir að vera á efstu hæfniþrepum? Þessir 15 ára nemendur geta til dæmis: unnið úr flóknum og óljósum upplýsingum, metið áreiðanleika gagna, dregið sjálfstæðar og gagnrýnar ályktanir, beitt þekkingu í nýjum og ókunnugum aðstæðum. Þetta eru nemendurnir sem síðar eru líklegri til að: leiða rannsóknir, þróa nýja tækni, skapa nýja þekkingu, og draga nýsköpunarvagninn. Hver ber ábyrgð á því að um 300 nemendur eru ,,rændir“ á ári hverju þessari afburðarhæfni? Ekki heyrist múkk frá þeim sem völdin hafa, stýra kerfinu og ákveða hvaða leiðir skulu farnar. Þögnin er ærandi. OECD hefur ítrekað bent á að sterk tengsl séu milli menntunar og langtímaframleiðni þjóða og bendir á að hætta sé á að minnsta kosti 5% samdrætti hvað framleiðni varðar eða um 250 milljarða árlega ef fram heldur sem horfir. Þjóðir sem ná ekki að rækta hæfileika sína dragast aftur úr í verðmætasköpun og samkeppnishæfni. Hvers vegna er staðan svona þar sem við höfum allar forsendur til að vera með eitt besta menntakerfi í heimi? Jöfnun niður á við er ekki hægt að réttlæta í nafni jöfnuðar. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar