Úr hverju er þessi kona gerð? Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 09:00 Þetta er setning sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Lilju Dögg Alfreðsdóttur. Henni fylgir mikill kraftur, hún getur haldið fjölmörgum boltum samtímis á lofti, hún er með skýra framtíðarsýn, hefur brennandi áhuga á einstökum verkefnum, er klók og útsjónarsöm þegar koma þarf hlutum í framkvæmd, er með stórt og gott tengslanet og, síðast en ekki síst, þá elskar hún Ísland og Framsóknarflokkinn – alveg eins og ég. Ekki skemmir heldur fyrir að hún hefur góðan húmor og tekur sjálfa sig mátulega alvarlega. Það er alltaf gaman í kringum Lilju, nema kannski þegar maður er ósammála henni, en það er önnur saga. Flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið í Reykjavík um helgina. Ég ætla að mæta og styðja Lilju Dögg. Ég kynntist henni fyrst þegar hún starfaði í starfshópi Framsóknarflokksins um afnám gjaldeyrishafta, mál sem flokkurinn setti á oddinn í Alþingiskosningunum árið 2013 þegar flokkurinn vann sögulegan sigur. Lilja hafði m.a. það verkefni að setja þingflokkinn inn í málið, sem hún gerði lystilega. Hún var þá starfsmaður Seðlabanka Íslands og greinilegt að hún hafði yfirgripsmikla þekkingu á hagfræði og efnahagsmálum, enda vel menntuð á því sviði. Henni fylgdi ferskur andblær og orka. Alltaf stutt í brosið, sem er ómetanlegt þegar maður er innan um mishressa þingmenn alla daga. Ég kynntist Lilju Dögg betur þegar hún tók við sem utanríkisráðherra árið 2016, en ég var nánast alla mína átta ára þingsetu í utanríkismálanefnd, Þjóðaröryggisráði og í Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Svo sátum við saman sem óbreyttir þingmenn á örstuttu kjörtímabili 2017–18 og að því loknu tók Lilja við sem mennta- og menningarmálaráðherra. Lilja bar algerlega höfuð og herðar yfir aðra ráðherra í framkvæmdagleði og árangri, enda keppnismanneskja með meiru. Hún náði mörgum stórum málum í gegn á stuttum tíma sem fyrri ráðherrar höfðu glímt við í áratugi; gott dæmi eru breytingar á lögum um námslánakerfið sem Lilja kom í gegn. Ég get haldið áfram að hrósa Lilju vinkonu, en ég ætla að láta staðar numið. Ég vona að hún verði næsti formaður Framsóknarflokksins. Hún er rétta manneskjan til að leiða þennan aldagamla flokk inn í nýja tíma. Það er ég sannfærð um. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og núverandi viðskiptastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar