Innlent

Aug­lýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrir­rúmi

Elín Margrét Böðvarsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Guðmundur Heiðar Helgason almannatengill ræddi auglýsingarnar á Ofurskálinni í kvöldfréttum Sýnar í gær.
Guðmundur Heiðar Helgason almannatengill ræddi auglýsingarnar á Ofurskálinni í kvöldfréttum Sýnar í gær. Vísir/samsett

Ofurskálin virðist festa sig betur í sessi sem íþrótta- og menningarviðburður hér á landi með hverju árinu sem líður. Almannatengill segir auglýsingarnar í kringum viðburðinn, sem verði súrari með hverju árinu, geta sagt okkur ýmislegt um tíðarandann hverju sinni.

Hinn árlegi risaviðburður Ofurskálin, eða Super Bowl, fór fram í fyrrinótt þar sem Seattle Seahawks báru sigur úr bítum gegn New England Patriots. Eins og svo oft áður fékk umstangið í kringum leikinn í raun meiri athygli en fótboltinn sjálfur. Sem dæmi má nefna auglýsingarnar en þeirra er beðið með álíka eftirvæntingu vestanhafs og ríkir fyrir áramótaskaupinu hér heima.

Guðmundur Heiðar Helgason, hugmyndasmiður og almannatengill, segir fyrirtæki spreða milljörðum til að tryggja sér pláss í glugganum.

„Ef þú ætlar að vera með Super Bowl auglýsingu þá er reglan yfirleitt go big or og home. Þú þarft annað hvort að vera með dúndrandi kreatíft efni eða þá frægt andlit, og bestu auglýsingarnar eru auðvitað með bæði,“ segir Guðmundur.

Auglýsingarnar segi ýmislegt um tíðarandann hverju sinni. „Manni finnst svolítið síðustu ár að sýrustigið hafi hækkað svolítið. Auglýsingar eiga það kannski til að vera svolítið skrýtnari og það er mikið lagt upp úr húmor og það er mikið verið að spila svolítið inn á nostalgíuna, þessa fortíðarþrá,“ segir Guðmundur.

Sé horft til Ofurskálarinnar um helgina megi sjá glögglega einnig hvernig auglýsingarnar geti breyst í takt við tíðarandann. „Við sjáum allt í einu að gervigreindin er orðin mjög áberandi,“ nefnir hann sem dæmi.

Matur og snarl yfir leiknum gegnir oft stóru hlutverki einnig á Ofurskálarsunnudeginum, auk þess sem hvað mest eftirvænting ríkir jafnan fyrir hálfleiksatriðinu sem Bad Bunny sá um í ár. Sitt sýndist hverjum en fréttastofa tók púlsinn á nokkrum gestum Kringlunnar í gær og spurði út í þennan þekkta tónlistarmann frá Púertó Ríkó, en viðbrögðin má sjá í fréttinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×