Borgarlínuþrengingar Elías B. Elíasson, Ragnar Árnason og Þórarinn Hjaltason skrifa 9. febrúar 2026 18:04 Undirritaðir hafa rannsakað arðsemi einstakra framkvæmda í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og áhrif þeirra á umferðartafir. Rannsóknin er á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE) og samtakanna Samgöngur fyrir alla (SFA) og nær einnig til valkosta við Borgarlínuna og mögulegra viðbótarframkvæmda í vegakerfi höfuðborgarsvæðisins. Á næstunni verður gefin út skýrsla um niðurstöður rannsóknarinnar. Í þessari grein fjöllum við einkum um Borgarlínuverkefnið. Tilefnið er deiliskipulag Suðurlandsbrautar sem nýlega var auglýst og grein Atla Björns Levy samgönguverkfræðings hjá Betri samgöngum ohf, en grein hans „Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut?“ birtist hér á Vísi 5. þ.m. Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? - Vísir Borgarlínan er þjóðhagslega óhagkvæm – Brýnt að skoða aðra valkosti Rannsókn okkar leiddi í ljós að arðsemi Borgarlínunnar er verulega neikvæð. Skýringin er tvíþætt. Annars vegar er stofnkostnaður gífurlega hár, um 130 milljarðar á verðlagi 2024. Hins vegar er ábati af framkvæmdinni neikvæður, aðallega vegna hins mikla kostnaðar við umferðartafir sem Borgarlínan veldur vegna fækkunar akreina fyrir almenna umferð. Flestir eru sammála um nauðsyn þess að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Við bendum því á valkost sem við köllum Hraðvagnakerfið sem er um 4 x ódýrara en Borgarlínan og hefur nánast sama þjónustustig. Munurinn er fólginn í því að í stað 40 km af rándýrum akbrautum Borgarlínunnar (ýmist miðjusettar eða sérbrautir til hliðar við götu fyrir almenna umferð) er Hraðvagnakerfið með hefðbundnar forgangsakreinar hægra megin í götuþversniði þar sem eru langar biðraðir bíla á álagstíma. Lauslega áætlað má reikna með allt að 10 km af nýjum forgangsakreinum til viðbótar við þær sem fyrir eru. Á mynd 1 má sjá gott dæmi um hvernig tiltölulega stuttar forgangsakreinar geta gert strætó kleyft að aka hindrunarlaust framhjá langri biðröð bíla. Myndin er tekin á Miklubraut austan Skeiðarvogs og horft til austurs. Með því að tengja saman aðreinar og fráreinar mislægra gatnamóta nægir að gera tiltölulega stutta forgangsakrein sem virkar vel. Á morgnana eru þarna langar biðraðir bíla sem ná alla leið að Mosfellsbæ á mesta álagstíma. Gera má ódýrar forgangsakreinar með sömu útfærslu á Vesturlandsvegi á kaflanum frá Miklubraut að Víkurvegi. Mynd 1 Hraðvagnakerfið - Dæmigerð útfærsla forgangsakreina á vegi með mislægum gatnamótum Deiliskipulag Suðurlandsbrautar Tillaga að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar á kaflanum frá Skeiðarvogi vestur fyrir Lágmúla hefur nýlega verið auglýst. Ef tillagan verður samþykkt mun flutningsgeta Suðurlandsbrautar fyrir bílaumferð minnka um helming frá því sem er í dag. Á mynd 2 má sjá kaflann milli Álfheima og Grensásvegar. Mynd 2 Tillaga að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar – Kaflinn milli Álfheima og Grensásvegar Fækka á akreinum inn í gatnamótin við Grensásveg um nálægt helming frá því sem er í dag. Samkvæmt umferðarspám mun tilkoma borgarlínu leiða til þess að bílaumferð á Suðurlandsbraut sem nú er mikilvæg samgönguæð muni minnka um þriðjung. Það segir okkur að umferðarástandið í borginni versnar umtalsvert. Umferðin sem flyst frá Suðurlandsbraut yfir á aðrar götur, s.s. Ármúla, Miklubraut og Sæbraut, stuðlar að lakara umferðarástandi á þeim götum. Fyrir höfuðborgarsvæðið í heild verður umferðarástandið árið 2040 miklu lakara en það er í dag, jafnvel þótt öllum framkvæmdum samgöngusáttmálans verði þá lokið. Í skýrslu Mannvits og Cowi frá janúar 2024 er t.d. reiknað með að umferðartafir mældar í klst. verði um þrisvar sinnum meiri 2040 en þær voru 2019. Það stefnir því í enn meira óefni í umferðarmálum höfuðborgarsvæðisins með óbreyttum samgöngusáttmála. Borgarlínan á ríkan þátt í því. Upplýsingaóreiða Orðið skilvirkni er notað nokkrum sinnum í grein Atla Björns Levy þegar hann fjallar um deiliskipulagstillöguna. En hvað með heildarskipulag samgangna á höfuðborgarsvæðinu? Er það skilvirkt? Höfundur segir í greininni: „Þegar hágæða almenningssamgöngur fá sérstöðu í borgum skapast raunhæfur valkostur við einkabílinn – sem getur skilað sér í minni bílaumferð en ella, bættum loftgæðum, minni umferðarhávaða og betra nærumhverfi.“ Svona er upplýsingaóreiða búin til. Höfuðborgarsvæðið er bílaborg þar sem flest heimili hafa bíl og mörg fleiri en einn. Sé bíll á annað borð fyrir hendi á heimilinu er samkeppnishæfni almenningssamgangna við notkun til ferða afskaplega veik jafnvel þótt almenningssamgöngurnar væru ókeypis. það eru því draumórar að heimili kjósi í verulegum mæli að hætta að nota bíla sína og fara þess í stað í strætó jafnvel þótt sá strætó sé kallaður borgarlína. Á hinn bóginn er beinlínis skaðlegt fyrir velferð borgarbúa að skerða aðgengi ferða með bíl eins og ætlunin er með þrengingu Suðurlandsbrautar fyrir almenna bílaumferð. Síðar stendur í greininni: „Með því að dreifa álagi á fleiri ferðamáta búum við til meira rými á götunum fyrir bílaumferð í einka- og atvinnuskyni, öll græða.“ Þetta stenst ekki fyrir Suðurlandsbraut þar sem fyrirhugað er að helminga rými fyrir bílaumferð. Fyrir höfuðborgarsvæðið í heild eru þetta einnig villandi upplýsingar í ljósi þess að umferðartafir skv. umferðarspám samgönguyfirvalda munu verða þrefalt meiri 2040 en 2019 þrátt fyrir gífurleg fjárútlát í Borgarlínu. Í þessu sambandi er vert að undirstrika að það rými sem Borgarlína tekur af almennri bílaumferð tefur miklu meira og veldur meiri kostnaði en allur hugsanlegur ábati af aukinni notkun almenningssamgangna. Elías B. Elíasson, verkfræðingur Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar