Innleiðing gervigreindar snýst ekki um tækni, heldur stjórnun Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar 9. febrúar 2026 07:02 Stærsta hindrunin í vegi fyrir innleiðingu gervigreindar í íslenskum fyrirtækjum er ekki skortur á tækni eða dýr hugbúnaðarleyfi. Hún er óttinn. Óttinn við að gera vitleysu, óttinn við að verða opinberlega „afhjúpaður“ fyrir að nota gervigreind á klaufalegan hátt og óttinn við hið óþekkta. Við höfum eytt síðustu tveimur árum í að tala um „Prompt Engineering“ eða hvernig á að hvísla réttu orðunum að vélinni, eins og gervigreind sé galdur sem krefst þess að maður kunni réttu þulurnar. „Myndin er búin til með gervigreind til að tákna mikilvægt hlutverk stjórnandans í stafrænum heimi.“ Staðreyndin er sú að fólk er líklega nú þegar farið að nota gervigreind í laumi, svokölluð „skugga-gervigreind“ (Shadow AI). Galdurinn til að beisla þetta afl liggur ekki í skipununum, heldur í stjórnuninni. Nýjustu rannsóknir frá Wharton háskóla sýna að þeir sem eru góðir stjórnendur eru líklegri til að ná árangri með gervigreind en þeir sem eru góðir í tækni. Að innleiða gervigreind snýst nefnilega ekki um að læra á nýtt tól, heldur að læra að stjórna nýjum, ofur-afkastamiklum en stundum gloppóttum samstarfsmanni. Förum aðeins yfir hvaða stjórnunarhæfileika fólk hefur, sem skilur á milli þeirra sem leika sér og þeirra sem leiða. Að skapa samhengi Við höfum öll heyrt setninguna „Garbage in, garbage out“. Með gervigreind gildir reglan „Context in, quality out“. Þú getur ekki hent nýliða inn á fund án þess að kynna fyrir honum verkefnið og það sama gildir um gervigreind. Færnin felst í því að „púsla saman“ rétta samhenginu áður en vinnan hefst. Þetta snýst um að hætta að spyrja gervigreindina eins og hún sé leitarvél og byrja að mata hana á innri gögnum: fundargerðum, stefnumótun, tölvupóstum og dæmum um tóninn. Þú ert ekki að leita að svari, þú ert að þjálfa ráðgjafa. Án samhengis er gervigreindin bara vel orðaður bullukollur, en með réttu samhengi er hún sérfræðingur í þínum rekstri. Ritstjórnarvaldið Hingað til höfum við einblínt á sköpunarmátt gervigreindar en nú færist áherslan yfir á gagnrýna hugsun. Þegar hver starfsmaður getur framleitt tíu blaðsíður af texta á sekúndu, verður verðmætasta færnin hæfileikinn til að meta gæði. Við þurfum að þjálfa okkur í að vera ritstjórar, ekki bara skrifarar. Þetta snýst um að þekkja takmörk vélarinnar, að vita hvenær hún er að skálda staðreyndir og hvenær hún er á réttri leið. Við höfum nýleg dæmi um hvernig það að birta „hráan“ gervigreindartexta getur skaðað orðspor fólks. En viðbrögðin mega ekki vera þau að banna notkunina af ótta við mistök. Þvert á móti þurfum við að skapa menningu þar sem er leyfilegt að mistakast og „leika sér“ með tæknina innanhúss. Það er eina leiðin til að vinna sig áfram og bæta sig. Galdurinn er að gera mistökin í öruggu umhverfi, en beita svo ritstjórnarvaldinu áður en efnið fer út. Ef við treystum vélinni í blindni, endum við með hágæða rusl, en ef við þorum ekki að nota hana, drögumst við aftur úr. Verkstjórn en ekki beiðni Hvernig myndir þú stjórna nýútskrifuðum háskólanema sem mætir til vinnu? Myndir þú henda fimmtíu blaðsíðna skýrslu í hann og segja „lagaðu þetta“? Nei, þú myndir brjóta verkefnið niður. Þetta er sá hæfileiki sem flestir klikka á því fólk reynir að láta gervigreindina gera allt í einu. Færnin felst í markvissu niðurbroti verkefna (Task Decomposition). Fyrst biður þú hana að draga saman aðalatriðin, næst að koma með hugmyndir að kaflaheitum og loks að skrifa innganginn. Þú ert verkstjórinn. Ef þú kannt ekki að deila út verkefnum til mannfólks, muntu líklega klúðra því með gervigreind. Dansinn við vélina Fyrsta svarið frá gervigreind er sjaldnast það rétta. Það eru drög og í raun ættum við að líta á fyrsta svar sem „70% lausn“. Hæfileikinn sem þarf að rækta er þrautseigja í samskiptum. Þetta er dans þar sem þú færð svar, leiðréttir, biður um breytingu á tóni eða gagnrýni á punkta og slípar verkið til. Fyrirtæki sem ná árangri skilja að gervigreind er ekki sjálfsali þar sem þú setur inn pening og færð súkkulaði. Hún er samstarfsfélagi sem þarf endurgjöf. Það er í þessum síðustu 30% – frá fyrstu drögum að lokaútgáfu – sem verðmætin verða til. Ósýnilegi samstarfsmaðurinn Við erum ennþá föst í því að „fara inn á Chat-ið“ til að gera eitthvað. Framtíðin snýst hins vegar um samþættingu. Spurningin er hvernig við fléttum gervigreind inn í vinnulagið þannig að hún verði eðlilegur hluti af flæðinu en ekki truflun. Þetta snýst um að breyta verkferlum þar sem gervigreindin er til dæmis með á fundinum og skrifar fundargerðina jafnóðum, eða les yfir öxlina á forritaranum. Við þurfum að hætta að líta á gervigreind sem „tól“ og byrja að líta á hana sem „innviði“. Hinn óútreiknanlegi jaðar Síðasti hæfileikinn er kannski sá mikilvægasti og snýst um innsæi gagnvart getu tækninnar. Ethan Mollick kallar þetta „The Jagged Frontier“ eða hinn ójafna jaðar. Gervigreind er ekki jafn góð í öllu; hún getur staðist lögfræðipróf með glæsibrag en fallið á einföldu stærðfræðidæmi. Hún getur verið skapandi snillingur í einu verkefni en algjör klaufi í öðru. Til að finna þennan jaðar þurfum við að skapa sálfræðilegt öryggi þar sem við þorum að gera tilraunir og það sem meira er, þorum að gera mistök. Ef fólk er hrætt við að viðurkenna að gervigreindin hafi klúðrað verkefni, lærum við ekki hvar mörkin liggja. Við verðum að þora að prófa vélina í nýjum verkefnum til að sjá hvort hún ráði við þau, því mörkin eru sífellt að færast til. Mannlegi þátturinn Ef við horfum á þessa sex þætti – samhengi, gæðamat, verkstjórn, ítrekun, samþættingu og nýsköpun – þá eiga þeir eitt sameiginlegt: Þeir krefjast allir mannlegrar greindar. Gervigreindin leysir okkur ekki af hólmi. Hún krefst þess að við verðum betri stjórnendur, betri ritstjórar og betri hugsuðir. Hún neyðir okkur til að hætta að vera vélmenni sem vinna leiðinleg verk og byrja að vera leiðtogar sem stýra stafrænu vinnuafli. Ekki senda fólk á námskeið í skipunum. Lærum að stjórna, gagnrýna og vinna með nýja, ofur-afkastamikla samstarfsmanninum okkar. Það er eina leiðin til að breyta óttanum í forskot. Höfundur er ráðgjafi í nýsköpun og gervigreind. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björgmundur Örn Guðmundsson Mest lesið Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Vangaveltur blóðmerabónda Heiðar Þór Sigurjónsson Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir Skoðun Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Bjartur Hrafn Jóhannsson Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Búum við í Norður-Kóreu? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Smámenni Snorri Sturluson Skoðun Skoðun Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Fæðuöryggi byrjar hér heima Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Bjartur Hrafn Jóhannsson skrifar Skoðun Flott að fá það á hreint, Þorgerður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður við borgarstjórn Reykjavíkur Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Búum við í Norður-Kóreu? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Fyrirframgreiðsla fyrir mannkosti Kári Stefánsson skrifar Skoðun Ekki okkar verðbólga Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Vangaveltur blóðmerabónda Heiðar Þór Sigurjónsson skrifar Skoðun Virðisaukaskattur er frábært fyrirbæri! Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Lífshlaupið - sterkari og heilbrigðari þjóð Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Dauðarefsing gegn börnum Yousef Tamimi skrifar Skoðun Þarf íþróttamaður að vera áhrifavaldur til að ná árangri? Egill Gunnarsson skrifar Skoðun Fjárfestum í verðmætasköpun Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Tvennt getur verið rétt á sama tíma Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er aðildarumsókn að ESB eins og hvert annað hefðbundið dægurmálaþras? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Húsnæðislán eða húsnæðis-lán? Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Smámenni Snorri Sturluson skrifar Skoðun Um mannréttindi allra kvenna Tatjana Latinović skrifar Skoðun Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Ef við erum öll almannavarnir – hver fer þá með forræðið? Jón Svanberg Hjartarson skrifar Skoðun Markvissar aðgerðir til að styrkja landamæri Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Biðin bitnar á börnunum Þorvaldur Davíð Kristjánsson,Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun
Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson Skoðun
Skoðun Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi: Kerfisvandi – en líka tæknilegt tækifæri Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun „Forsjárdeila“ er ekki sönnunargagn í sakamálarannsókn Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson skrifar
Skoðun Er aðildarumsókn að ESB eins og hvert annað hefðbundið dægurmálaþras? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar
Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum Hlynur Áskelson,Baldur Borgþórsson,Sigfús Aðalsteinsson Skoðun
Kennslutími, kostnaður og árangur – hvað segja gögnin í raun Ómar Örn Magnússon,Linda Heiðarsdóttir,Jón Páll Haraldsson Skoðun