Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Aron Guðmundsson skrifar 7. febrúar 2026 08:01 Guðrún Arnardóttir í leik með íslenska landsliðinu þar sem hún hefur verið fastamaður. Getty/Alex Nicodim Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Guðrún Arnardóttir, þurfti að standa með sjálfri sér á erfiðum tímapunkti á sínum ferli þegar að gleðin, sem hún finnur fyrir með því að spila fótbolta, virtist við það að hverfa.
Eftir að hafa aðeins verið í hálft ár í herbúðum portúgalska félagsins Braga bárust þau óvæntu tíðindi að Guðrún hefði yfirgefið liðið. Eftir það sem þá leit út fyrir að vera spennandi skref til Braga frá sænska stórliðinu Rosengard fann Guðrún það fljótt að umhverfið í Portúgal hentaði sér ekki. „Ég fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi,“ segir Guðrún í viðtali við íþróttadeild Sýnar. „Það er erfið tilfinning að finna fyrir þegar maður er alltaf að leitast eftir því að bæta sig og vera besta útgáfan af sjálfri sér. Ég var í raun aðeins farin að missa gleðina af því að spila og átti þess vegna bara samræður við forráðamenn félagsins og var mjög heiðarleg með það hvernig mér liði.“ Mikilvægt að halda í gleðina Það tók tíma fyrir forráðamenn Braga til þess að sýna Guðrúnu skilning en það gerðu þeir þó og best fyrri alla aðila að leiðir myndu skilja. „Þetta er erfitt því maður vill alltaf vera eins góður og maður getur, gera allt fyrir liðið sem maður er í og liðsfélagana. En þegar að maður er orðin þetta gömul þá er maður búin að læra ýmislegt, farin að þekkja hvað virkar fyrir mann og hvað ekki, hvað það er sem fær mann til að þrífast og hvað það er sem heldur aftur að manni.“ Guðrún þurfti að standa með sjálfri sér, eitthvað sem ætti að vera sjálfsagður hlutur en getur verið flókið fyrir atvinnumenn í fótbolta sem hafa skuldbundið sig til lengri tíma. „Ég er í fótbolta af því að mér finnst það skemmtilegt. Þetta væri ekki þess virði ef þetta væri ekki svona ótrúlega skemmtilegt. Þess vegna fannst mér mikilvægt að halda í gleðina, halda í að njóta þess að spila fótbolta.“ Guðrúnu bauðst tækifæri til þess að snúa aftur í sænska boltanum, þar sem hún hefur áður gert garðinn frægan og unnið titla. Hún samdi við topplið Hammarby og framundan eru ævintýri í Svíþjóð og Evrópuboltanum. Guðrún Arnardóttir er orðin grænklædd á nýjan leik en litin þekkir hún frá tíma sínum í BreiðablikiHammarby „Ég er bara ánægð með að hafa tekið þessa ákvörðun og fann það strax eftir að ég mætti til Hammarby og spilaði leik hvað mér fannst það ógeðslega gaman. Ég finn fyrir gleðinni aftur. Þetta er félag sem vill vera í toppbaráttu á hverju ári, lið með mikinn metnað og gríðarlegt magn af stuðningsfólki. Það er alveg til fyrirmyndar hvernig stuðningurinn í kringum liðið er. Það er mikið hjarta í liðinu og ákveðin krafa frá stuðningsmönnum í garð félagsins að það sé að berjast við toppinn, að þetta sé félag sem spili fallegan fótbolta með mikilli ákefð. Ég finn fyrir miklum metnaði hér, umgjörðin er eftir því líka. Það er ótrúlega gaman að vera partur af þessu.“
Sænski boltinn Mest lesið ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Jökull rekinn frá Stjörnunni Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Elísa Lana tryggði Kristianstad jafntefli Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Sjá meira