Þetta snýst um Hafnarfjörð Valdimar Víðisson skrifar 6. febrúar 2026 07:45 Niðurstöður árlegrar þjónustukönnunar Gallup eru skýr skilaboð frá Hafnfirðingum um að hér sé gott að búa. 91% Hafnfirðinga eru ánægðir með Hafnarfjörð sem stað til að búa á. Hafnarfjörður er fyrir ofan meðaltal í öllum mældum þáttum og flestir þættir hækka á milli ára, einn þáttur sem stendur í stað. Þetta er góð vísbending um að sú vinna sem hefur verið unnin í bæjarfélaginu er að skila sér í raunverulegri upplifun íbúa. Svona niðurstöður koma ekki af sjálfu sér. Þær verða til þegar þjónustan virkar, þegar innviðir halda, þegar samskipti eru skýr og þegar fólk finnur að á það er hlustað og brugðist við. Menning í fremstu röð Einn skýrasti styrkleiki Hafnarfjarðar í niðurstöðunum eru ánægja með menningarmálin. Hafnarfjörður trónir þar á toppnum þegar spurt er um hvernig bæjarfélagið sinnir menningarmálum. Þetta skiptir miklu máli, því menning er ekki bara viðburðir. Menningin er hluti af daglegu lífi, hún eflir samveru, styrkir bæjarbraginn og gerir bæinn lifandi. Hún skapar líka sjálfsmynd, stolt og tengsl, bæði innan bæjarins og út á við. Þessi árangur byggir á samspili margra. Það er mikill metnaður í skipulagi og dagskrá, það er öflugt starf stofnana, frjótt félagslíf og almennt mikill kraftur í Hafnfirðingum. Íþróttir, skólastarf og þjónusta sem skiptir máli Niðurstöðurnar sýna líka sterka stöðu í íþróttum og tómstundum. 86% eru ánægð eða mjög ánægð með aðstöðu til íþróttaiðkunar. Góð íþróttaaðstaða er bein fjárfesting í lýðheilsu, vellíðan og félagslegri þátttöku. Hún skapar tækifæri fyrir börn og ungmenni, styður við fullorðna og eldri íbúa og styrkir samfélagið allt með virkni og samveru. Í fræðslumálum eru einnig jákvæð teikn. Ánægja með þjónustu grunnskóla eykst á milli ára. Skólamál snerta nánast hvert heimili með beinum hætti og þessi niðurstaða endurspeglar bæði faglegt starf á vettvangi og þá vinnu sem unnin er í kringum skólana með áherslu á gæði, stuðning og stöðugar umbætur. Könnunin gefur jafnframt innsýn í aðra þætti sem skipta íbúa miklu máli. Þar má nefna þjónustu við eldri fólk og fatlað fólk, skipulagsmál og daglega þjónustu eins og sorphirðu. Þetta eru málaflokkar sem fólk finnur fyrir í hversdagslífinu og niðurstöðurnar sýna að Hafnarfjörður er að skila traustri þjónustu á breiðum grunni. Rýnum niðurstöðurnar og gerum enn betur Sterkar niðurstöður eru alltaf gleðiefni. Þær segja okkur hvað virkar vel, en þær segja líka að við eigum að nýta tækifærið til að gera enn betur. Næsta skref er að rýna niðurstöðurnar af festu og greina hvað skýrir hækkunina í flestum þáttum, læra af því sem er að ganga best og setja markvissar aðgerðir þar sem við sjáum sóknarfæri. Sumt er hægt að bæta fljótt með skýrari upplýsingagjöf, betri ferlum eða einfaldari aðgengi. Annað krefst lengri tíma, fjárfestinga og samvinnu. En lykillinn er sá sami en það er að vinna með gögnin af yfirvegun, hlusta áfram á íbúa og halda fókus á því sem skiptir mestu í daglegu lífi fólks. Þetta snýst um Hafnarfjörð. Um það að skapa bæ sem fólk treystir, nýtur og er stolt af. Það er bæði hrós og hvatning þegar Hafnfirðingar segja okkur með þessum hætti að þeir séu ánægðir. Hvatning til að halda áfram, standa vörð um það sem við gerum vel og efla það sem þarf að bæta. Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar