Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2026 22:43 Engar sannanir liggja fyrir varðandi það að skíðastökkvarar stækki typpi sín til þess að ná betri árangri, þó að grunur virðist leika á því. Getty/Tom Weller Grunur leikur á því að karlkyns keppendur í skíðastökki hafi sumir hverjir nýtt sér typpastækkun til þess að öðlast forskot á keppinauta sína. Alþjóða lyfjaeftirlitið, WADA, gæti þurft að rannsaka málið.
Þýski miðillinn Bild greindi frá því í janúar að skíðastökkvarar væru farnir að sprauta hýalúronsýru í reður sinn og stækka hann, með það í huga að mega þá klæðast örlítið stærri keppnisbúningi. Stærra typpi getur þannig skipt sköpum, til dæmis á Vetrarólympíuleikunum sem eru að hefjast, því stærri búningur hjálpar mönnum að stökkva örlítið lengra. „Hver einasti aukasentímetri á búningnum skiptir máli. Ef að búningurinn er 5% stærri að flatarmáli þá flýgur maður lengra,“ sagði Sandro Pertile, mótastjóri hjá alþjóða skíðasambandinu, við BBC en strangar reglur gilda um hve þröngir búningarnir eiga að vera. It's reported that this would increase the surface area of their suits during competition, theoretically leading to extended flight times. World Anti-Doping Agency chiefs have said they will investigate if a complaint is made. pic.twitter.com/uDP56U5fXu— BBC Sport (@BBCSport) February 5, 2026 Olivier Niggli, forstjóri WADA, var spurður út í stóra typpamálið á blaðamannafundi í Mílanó í dag og virtist vissulega hafa nokkuð gaman af vangaveltunum. „Ég þekki ekki hvernig smáatriðin eru í skíðastökki og hvernig þetta gæti hjálpað til við að ná árangri,“ sagði Niggli. „Ef eitthvað kemur upp á yfirborðið þá skoðum við það og þá hvort þetta tengist ólöglegri lyfjanotkun. Við tökum ekki á öðrum aðferðum [en ólöglegri lyfjanotkun] til að ná árangri,“ sagði Niggli. Enginn hefur verið nafngreindur, grunaður um að nota þær aðferðir sem Bild lýsti, og Sky Sports segir skíðastökkvara hafa alfarið hafnað því að þær séu notaðar. Það er hins vegar ljóst að öllum brögðum er beitt til þess að ná sem mestum árangri í greininni og skemmst að minnast þess þegar Norðmenn urðu uppvísir að svindli á HM í fyrra, með því að eiga við búninga sinna keppenda.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir Bætti óvænt fjórtán ára gamalt met Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Söguleg endurkoma Knicks Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Sjá meira