Innlent

Urðu vitni að því þegar maður var háls­höggvinn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Grétar Br. Kristjánsson lögmaður var starfsmaður Loftleiða og síðar Flugleiða meginhluta starfsævi sinnar.
Grétar Br. Kristjánsson lögmaður var starfsmaður Loftleiða og síðar Flugleiða meginhluta starfsævi sinnar. Egill Aðalsteinsson

Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina.

Flug með pílagríma til og frá Sádí-Arabíu hefur í hálfa öld verið þýðingarmikill þáttur í alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga. Íslenska flugfólkið kynntist þar framandi siðum.

„Það var verið að lífláta fólk. Hálshöggva fólk og höggva af þeim hendur á torgum. Þetta var náttúrlega einhver viðbjóður sem mig langaði ekki til að upplifa,“ sagði Þuríður Sigurðardóttir, söngkona og fyrrverandi flugfreyja.

Þuríður Sigurðardóttir söngkona starfaði sem flugfreyja í pílagrímafluginu.Egill Aðalsteinsson

Þóra Guðmundsdóttir, stofnandi Air Atlanta, veit til þess að einn hópur starfsmanna félagsins hafi farið að sjá slíka aftöku.

„Og áttu mjög erfitt á eftir. En við vorum mjög hörð á því að þeir færu ekki. Þá yrði tekið á málum,“ sagði Þóra.

Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda Air Atlanta.Egill Aðalsteinsson

Grétar Br. Kristjánsson, sem lést í fyrrasumar, lýsti því í viðtali sem tekið var nokkrum mánuðum áður, hvernig hann ásamt tveimur öðrum starfsmönnum Flugleiða, dróst óvart inn í mannþröng í miðborg Jedda án þess að vita hvað var að gerast. Þá hafi bíl verið ekið inn á torgið.

„Út úr honum drógu þeir mann, bundinn með hendur fyrir aftan bak. Og áður en við vissum af var komin á loft sveðja og það var búið að höggva af honum höfuðið. Og við vorum sennilega ekki lengra í burtu en tveir metrar,“ sagði Grétar.

„Maður var hálshöggvinn þarna fyrir framan okkur. Þetta var eitthvað svo óraunverulegt. En samt sáum við höfuðið fara af.“

Þáttinn um pílagrímaflugið má nálgast á vefsjónvarpinu Sýn+.

Hér má sjá kafla úr þættinum þar sem þau Grétar, Þóra og Þuríður segja frá þessum óhugnaði:


Tengdar fréttir

Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu

Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta.

Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta

Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra.

Stefnir í stærsta ár Air Atlanta með allt að tuttugu breiðþotur

Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum, meðal annars til að nota í umfangsmiklu pílagrímaflugi. Forstjórinn segir stefna í að árið verði það allra stærsta í sögu félagsins með allt að tuttugu risaþotur í rekstri.

Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug

„Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×