Er Reykjavík borg sem listafólki þykir gott að búa og starfa í? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 14:00 Reykjavík hefur um árabil markað sér stöðu sem skapandi borg, staður þar sem listafólki þykir gott að búa og starfa. Sú ímynd byggir á lifandi menningarrýmum: æfingasölum, tónleikastöðum, vinnustofum og sýningarrýmum. Þegar slík rými hverfa, dofnar súrefnið í menningarlífinu. Á undanförnum tveimur áratugum hafa mörg rými lokað, ýmist vegna þrýstings frá ferðaþjónustu, hertra öryggis- og reglugerðarkrafna eða skorts á fjármagni. Afleiðingin er sú að grasrótarstarfsemi í tónlist, sviðslistum og myndlist stendur frammi fyrir alvarlegum húsnæðisskorti. Þetta er kerfislægt vandamál sem kallar á pólitíska forgangsröðun. Keðjuverkandi áhrif Tónleikastaðir og sviðslistarými af ólíkum stærðum og gerðum eru lykilforsenda fjölbreytilegs og lifandi menningarlífs í borginni. Þeir eru vettvangur tilrauna, þróunar og nýsköpunar – staðir þar sem listafólk stígur sín fyrstu skref og byggir upp feril áður en það fær aðgang að stærri húsum á borð við Hörpu eða Borgarleikhúsið. Þegar slíkum rýmum fækkar rofnar þessi þróunarkeðja. Samkvæmt gögnum Tónlistarborgarinnar hefur þeim tónleikastöðum sem leggja megináherslu á lifandi flutning fækkað verulega á síðustu árum. Frá árinu 2024 hafa fjórir tónleikastaðir lokað, sumir rótgrónir: Gaukurinn, Húrra, KEX og Bird. Þróunin hefur ýtt lifandi tónlist inn í óhefðbundin rými, t.d. plötubúðir og kirkjur. Þótt það sé kærkomin viðbót við mannlíf miðborgarinnar kemur það ekki í stað sérhæfðra tónleikastaða. Þar vantar svið, hljóðkerfi, tæknimenn og það rými sem þarf til að tónlistarfólk geti þróað sig faglega. Rými koma með súrefni Landslag sviðslista á höfuðborgarsvæðinu hefur gjörbreyst á síðustu árum. Þótt stofnanir eins og Íslenski dansflokkurinn, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið standi áfram sterkum fótum, hefur sjálfstætt starfandi sviðslistahópum fjölgað og vettvangurinn breikkað og eflst faglega. Frumsýningar utan stóru leikhúsanna skipta tugum árlega og listræn gæði þeirra eru samkeppnishæf við sýningar stofnananna. Listform á borð við drag, burlesque, kabarett og sirkus hafa fest sig í sessi og eru nú órjúfanlegur hluti af sviðslistalífi borgarinnar. Þrátt fyrir þessa grósku er staða sjálfstæðra sviðslista þegar kemur að rýmum ekki góð. Úttekt sem Vigdís Jakobsdóttir vann fyrir Reykjavíkurborg og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið sýnir að skortur á aðgengilegum og viðeigandi rýmum hamlar þróun sviðslista og ógnar sjálfbærni þeirra. Skýrslan er vel unnin og leggur fram mikilvægar tillögur sem vel er hægt að framkvæma ef pólitískur vilji er fyrir hendi: að fullnýta rými í opinberri eigu, koma á fót „svörtum kassa“ sem nýju sýningarrými og fjárfesta í færanlegu leiksviði sem myndi styðja fjölbreytt verkefni. Menningarstefna án aðgerða? Reykjavíkurborg er ekki aðeins stefnumótandi stjórnvald heldur einnig stór húsnæðiseigandi. Áhrif borgarinnar á þróun menningarrýma eru því bein og afgerandi. Það kallar á skýra stefnu um hvernig rýmum í eigu borgarinnar er ráðstafað, hvaða starfsemi þar á að dafna og hvernig tryggja megi fyrirsjáanleika fyrir listafólk og rekstraraðila. Í Menningarstefnu Reykjavíkurborgar til 2030 er lögð áhersla á að borgin sé frjótt umhverfi fyrir listsköpun og lifandi menningu. Hins vegar rann aðgerðaráætlun stefnunnar út árið 2023. Án virkrar aðgerðaráætlunar verður stefnan að fagurri yfirlýsingu án raunverulegs bitkrafts. Kall eftir pólitískri ábyrgð – Fjárfestum í rýmum Segja má að menning sé flökkutaugin í Reykjavík. Hún heldur borginni lifandi, skapar samfélagsleg, menningarleg og efnahagsleg verðmæti og gerir hana að stað þar sem fólk vill búa og starfa. Menningin er órjúfanlegur hluti af aðdráttarafli borgarinnar, bæði fyrir íbúa og gesti, og tryggir að Reykjavík haldi sér sem skapandi borg á heimsmælikvarða. Ef borgin ætlar að standa undir þessari ímynd þarf hún að axla ábyrgð og tryggja að menningin fái nægileg rými og aðstöðu til að dafna – frá æfingasölum og tónleikastöðum til vinnustofa og sýningarrýma. Þetta kallar á heildræna greiningu, skýra framtíðarsýn og markvissar aðgerðir: að Reykjavíkurborg viðurkenni mikilvægi tónleikastaða og menningarrýma og fjárfesti í innviðum fyrir sviðslistir, tónlist og myndlist. Nú eru sveitarstjórnarkosningar framundan – augnablik þar sem framtíðarsýn borgarinnar er mótuð í raunverulegri forgangsröðum, ekki aðeins í stefnumótandi yfirlýsingum. Frambjóðendur þurfa að kynna sér stöðu menningarrýma í Reykjavík, hlusta á listafólk og leggja fram skýrar, tímasettar aðgerðir sem tryggja húsnæði og aðstöðu fyrir alla menningarstarfsemi borgarinnar. Menning er einn af grunninnviðum borgarinnar, rétt eins og samgöngur og húsnæði. Án rýma fyrir sköpun, æfingar og miðlun kafnar menningarlífið – og þar með sú borg sem Reykjavík vill vera – borg sem listafólki þykir gott að búa og starfa í. Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar