Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Árni Sæberg skrifar 3. febrúar 2026 11:45 Andlátið bar að í síðustu viku í Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum sjúkrastofnunar í Vestmannaeyjum í tengslum við andlát á stofnuninni í síðustu viku. Gæsluvarðhaldskrafan verður tekin fyrir í hádeginu en lögregla vill halda sakborningunum fram á föstudag.
Þetta segir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. Greint var frá því í gær að tveir hefðu verið handteknir í tengslum við rannsókn á andláti konu á sjúkrastofnuninni. Samkvæmt heimildum fréttastofu var konan komin vel á tíræðisaldur. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru hinir handteknu starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða og annar þeirra yfirmaður á stofnuninni. Jón Gunnar kveðst ekkert geta staðfest í þeim efnum. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins þrátt fyrir að það heyri undir lögregluna í Vestmannaeyjum. Í samtali við fréttastofu í morgun sagðist Jón Gunnar ekki geta gefið upp ástæður þess að embætti hans var falin rannsóknin en sagði að rannsóknin snerist að því hvort andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Samkvæmt heimildum fréttastofu var ákveðið að fela öðru embætti rannsóknina vegna tengsla yfirmanns hjá lögreglunni í Eyjum við hina látnu. Þá hefur embætti Landlæknis andlátið til skoðunar og sagði Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður Landlæknis að embættinu hefði verið tilkynnt um alvarlegt atvik en gat ekki tjáð sig að öðru leyti. Díana Óskarsdóttir er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.Vísir/Magnús Hlynur Hjúkrunarheimilið Hraunbúðir heyrir undir Heilbrigðisstofnun suðurlands og í samtali við fréttastofu í morgun við Díönu Óskarsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, kom fram að málið hefði komið á hennar borð um helgina. Hún vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið en sagði málið viðkvæmt og að stofnunin leggði mikla áherslu á samstarf við lögregluna. Hún sagði að á þessari stundu væri einblínt á líðan starfsfólks og þeirra sem málinu tengjast.
Vestmannaeyjar Lögreglumál Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira