Um ESB-umsókn og sjávarútveg Kjartan Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 11:31 Sigurður Kári Kristjánsson hefur verið duglegur að tala gegn því að kosið verði um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, nú síðast í Silfrinu þann 2. febrúar. Þar tyggur hann upp sömu tuggu og heyrist víða frá andstæðingum aðildar, að ekkert sé um að semja og aðild þýði m.a. að við missum öll yfirráð yfir auðlindum okkar, þ.m.t. fiskveiðum. Vísaði hann m.a. í Stefan Fule, þáverandi stækkunarstjóra ESB, sem fullyrti fyrir 15 árum að ekki yrði um neinar varanlegar undanþágur að ræða. Norðmenn felldu tvívegis aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu, en þeir gerðu það að undangengnum samningum þar sem m.a. var samið um sjávarútveg. Það er forvitnilegt að skoða þann samning – samning sem ESB samþykkti af sinni hálfu. Hann er staðreynd, ekki skoðun eða vangaveltur. Þar er fiskveiðilögsögu Noregs skipt í tvennt; syðri svæðin, sem Norðmenn deildu með öðrum þjóðum, og nyrðri svæðin sem fram til þessa höfðu verið á forræði þeirra sjálfra. Samkvæmt samningnum féll syðra svæðið undir sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB. Þar deildu Norðmenn fiskistofnum með öðrum þjóðum og höfðu þá þegar skrifað undir fjölda samninga vegna þeirra veiða. Nyrðra svæðið, þar sem þeir höfðu til þessa veitt einir, átti eftir sem áður að vera á forræði Norðmanna. Það forræði var þó ekki án skilyrða. Skilyrðin voru m.a. kvótasetning samkvæmt vísindalegri ráðgjöf, unnið yrði gegn ofveiði og framkvæmd og útfærsla veiðanna uppfyllti almenn skilyrði ESB um jafnræði og samkeppni. Aðstæður á Íslandi eru sambærilegar við Norður-Noreg, þar höfum við að mestu veitt einir. Við uppfyllum auk þess nú þegar tvö fyrstu skilyrðin, um vísindalega kvótaúthlutun og sjálfbærar veiðar og færa mætti rök fyrir því að lög og reglur um jafnræði og samkeppni sé einmitt það sem við þurfum í íslenskum sjávarútvegi. Það er t.d. vafasamt að kvótaúthlutun sem byggist á hefð fái staðist samkvæmt þessum reglum. Eða að það líðist að veiði og vinnsla sé á sömu höndum, sem hefur leitt af sér að sjómenn eru reglulega hlunnfarnir vegna of lágrar verðlagningar á afla. Það er áhugavert að þessi skoðun, að ekki sé um neitt að semja með tilvísun í áðurnefnda fullyrðingu Stefans Fule, kemur gjarnan frá hægri mönnum. Maður myndi ætla að hægri menn kynnu eitthvað fyrir sér í viðskiptum og samningum. Þessi fullyrðing Fules var útspil í samningum sem áttu eftir að fara fram. Hann veit hvað hann er að gera og fer ekki fram með fullyrðingar um tilteknar undanþágur áður en hann fer að semja. Samningar Norðmanna og ESB sýna svo ekki verður um villst að þetta er ekki meitlað í stein. Nú er mögulegt að þessa andstaða tiltekinna hægri manna við atkvæðagreiðsluna, byggðri á þessum orðum Fules, megi rekja til fákunnáttu þeirra í samningatækni. Önnur útskýring væri sú að þeir séu að verja ákveðna hagsmuni sem sjá sér ógnað með reglum sem kveða á um gagnsæi og samkeppni í íslenskum sjávarútvegi. Meti það hver sem vill. Höfundur er kennari og framkvæmdastjóri Múltíkúltí íslensku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar