Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. febrúar 2026 22:31 Mette-Marit og Hákon krónprins. Rune Hellestad - Corbis/Corbis via Getty Images Vonbrigði norsku þjóðarinnar með krónprinsessu landsins eftir opinberanir í Epstein-skjölunum og málaferli gegn syni hennar rista djúpt, að sögn Íslendings í Noregi. Norðmenn taki því illa þegar orðstír þjóðarinnar sé í húfi.
Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta? var fyrirsögn norska miðilsins Aftenposten eftir að tölvupóstsamskipti norsku krónprinsessunnar og barnaníðings Jeffrey Epsteins birtust í nýjustu opinberunum Epstein skjalanna. Málið kemur á versta tíma fyrir fjölskylduna því sonur hennar úr fyrra hjónabandi, Marius Borg Hoiby, var handtekinn í gær grunaður um líkamsárás, hótun með hnífi og brot gegn nálgunarbanni. Héraðsdómur í Osló úrskurðaði í dag Marius í gæsluvarðhald í mánuð vegna málsins. Áður átti að rétta yfir honum vegna 38 meintra brota, meðal annars fyrir ofbeldi í nánu sambandi og nauðgun svo fátt eitt sé nefnd. Valgeir Magnússon, Íslendingur í Noregi, segir Norðmenn einfaldlega ekki tala um annað. Svo elskuð „Vegna þess að þetta eru svo mikil vonbrigði. Hún var svo elskuð og þessi afsökunarbeiðni sem hún er búin að senda frá sér, fólki þykir það ekki nóg, fólk er svona í biðstöðu, í vonbrigðum. Fólk er að pæla í því hvort hún var rétta manneskjan yfirleitt. Þetta verður mjög erfitt fyrir hana að ná aftur trúverðugleikanum sem hún þarf til að vera framtíðardrottning Noregs.“ Fjölskyldan eigi þó fleiri ása í erminni líkt og dóttur þeirra Hákons, Ingrid Alexöndru sem tók á móti Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í fyrra og segir Valgeir fátt benda til þess að skandalarnir bitni á Hákoni krónprinsi. „Norðmönnum líður mjög illa ef Norðmenn líta illa út á heimssviðinu. Noregur er svolítið svona fullkominn staður og svo eru fleiri í þessum skjölum eins og fyrrverandi forsætisráðherra en hann er búinn með sinn feril og enginn hefur áhyggjur af því og hann var svona pínu skrítinn á sínum tíma hvorteðer en hún var gersemi og hún var öskubuskan þeirra, þannig þau voru svolítið að tapa Disney prinsessunni sinni.“
Noregur Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira