KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 11:32 Almar Orri Atlason er hér búinn að koma auga á opna leið upp að körfunni og keyrir um leið fram hjá sínum manni. Getty/Frank Jansky Almar Orri Atlason og félagar í Miami-háskólanum hafa vakið mikla athygli í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur og hafa enn ekki tapað leik á tímabilinu.
Tímabilið hjá Almari Orra byrjaði með íslenska A-landsliðinu á Eurobasket en hann hefur síðan upplifað annað ævintýri á fyrsta vetri sínum með Miami Red Hawks-liðinu. Liðið er núna í 24. sæti yfir bestu háskólaliðin á nýjasta listanum hjá NCAA og er liðið komið vel á veg með því að tryggja sér þátttökurétt í körfuboltafárinu í mars en það kallast vanalega úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans. Almar Orri er uppalinn í KR en hefur einnig spilað risastórt hlutverk hjá unglingalandsliðum Íslands síðustu ár. Í haust var hann síðan valinn í íslenska EM-hópinn og fékk að spreyta sig á stóra sviðinu. „Almar er alveg 2,03 metrar og 106 kíló, en hann er svolítið eins og leikstjórnandi,“ sagði Travis Steele, aðalþjálfari Miami, um Almar á heimasíðu skólans. View this post on Instagram A post shared by Miami Men’s Basketball (@miamioh_bball) Þjálfarinn hrósar Íslendingum fyrir körfuboltaklókindi. „Hann hefur mjög góðan körfuboltaskilning, sér hlutina vel á báðum endum vallarins, er augljóslega gríðarlega stór, skýtur vel, getur sent boltann og getur höndlað hann svolítið,“ sagði Steele. „Hann er erfiður viðureignar og býr til vandamál fyrir andstæðingana. Það er erfitt að dekka hann. Hann er leikmaður sem heldur fyrir þér vöku á nóttunni sem þjálfari andstæðingaliðsins,“ sagði Steele sem hefur mikla trú á Íslendingnum. Almar ákvað að skipta úr Bradley-skólanum og fara yfir í Miami-skólann sem er þrátt fyrir nafnið ekki á Flórída heldur í Ohío-fylki. „Hæfileikar Atlasonar ættu að passa fullkomlega inn í Oxford fyrir það sem Red Hawks eru að reyna að gera leikkerfislega (sérstaklega í sókninni), þar sem fjölhæfni hans gerir honum kleift að spila í stöðu kraftframherja (4) við hliðina á stóra manninum Antwone Woolfolk, sem snýr aftur, eða að færast yfir í stöðu miðherja (5) við hliðina á vængmönnum eins og Eian Elmer og Brant Byers,“ segir um Almar á heimasíðu skólans. View this post on Instagram A post shared by Miami Men’s Basketball (@miamioh_bball) Almar sjálfur sá það líka hvernig hæfileikar hans gátu blandast leikkerfi Steele og það er stór ástæða fyrir því að hann ákvað að skipta yfir í Miami. „Eitt af því fyrsta sem hann spurði mig var að hverju ég væri að leita,“ sagði Atlason. „Ég nefndi nokkur atriði og þá sagði hann bara: ‚Þannig spilum við og það er það sem við gerum.‘ Þetta passaði einhvern veginn saman. Hann vill spila hratt, finna góð þriggja stiga skot og spila með flæðandi leikstíl: Leikmenn taka ákvarðanir og hreyfa boltann. Ég held að það henti mér mjög vel og það er það sem við erum að gera hér,“ sagði Almar. Niðurstaðan er fullkomið tímabil hingað til. Miami er búið að vinna 22 fyrstu leiki tímabilsins og það sem meira er að þeim er raðað sem eitt af 25 bestu körfuboltaliðum Bandaríkjanna. Liðið komst inn á listann í 25. sæti á listanum 20. janúar og er komið upp í 24. sæti á nýjasta listanum. Þetta er í fyrsta sinn á þessari öld, eða síðan árið 1999, sem lið skólans kemst í hóp bestu körfuboltaliða Bandaríkjanna. Almar er að skila 10,9 stigum að meðaltali á 18,6 mínútum í leik. Hann hefur nýtt 39 prósent þriggja stiga skota sinna, 84 prósent vítanna og er að setja niður næstum því tvo þrista að meðaltali. Hann skoraði 26 stig í einum sigurleiknum og var þá stigahæsti maður liðsins sem hann hefur þegar náð fjórum sinnum á leiktíðinni. Næsti leikur liðsins er á útivelli á móti Buffalo í kvöld. View this post on Instagram A post shared by NCAA March Madness (@marchmadnessmbb)
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Körfubolti Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Fótbolti Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Handbolti Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Körfubolti Hættir við æfingabúðir af ótta við ebólu Fótbolti Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Handbolti Áfrýjun Southampton hafnað og Middlesbrough mun spila úrslitaleikinn Fótbolti „Hefðu átt að vera stærri úrslit“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Eyjamenn fara upp á Skaga í leit að fyrsta sigri sumarsins Sport Fleiri fréttir Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Bjarni Guðmann framlengir í Garðabæ Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Sjá meira