Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. febrúar 2026 15:17 Kylian Mbappé skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á tíundu mínútu uppbótartíma. Jose Breton/Pics Action/NurPhoto via Getty Images Real Madrid vann hádramatískan 2-1 sigur þegar fallbaráttulið Rayo Vallecano kom í heimsókn í 22. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Kylian Mbappé klúðraði fyrir opnu marki en bætti upp fyrir það undir blálok leiksins og skoraði sigurmarkið. Gestirnir enduðu með níu menn inni á vellinum.
Leikurinn hófst ekki vel fyrir heimamenn í Madríd. Áhorfendur bauluðu á liðið þegar það gekk inn á völlinn, en klappaði þegar tilkynnt var að Carlos Alcaraz hefði unnið Opna ástralska. Vinicius Jr. komst síðan í gott færi strax á 2. mínútu og uppskar hornspyrnu. Hann setti hendur upp í loft og heimtaði að áhorfendur klöppuðu fyrir honum, en uppskar bara meira baul. Á 10. mínútu þurfti Jude Bellingham síðan að fara meiddur af velli. Liðið var samt vel spilandi gegn nágrannaliðinu sem situr í 16. sæti deildarinnar og tók forystuna á 15. mínútu þegar Vinicius Jr. keyrði inn af kantinum og skrúfaði boltann í fjærhornið. Real Madrid leiddi naumlega í hálfleik en Rayo Vallecano var nokkuð ógnandi undir lok fyrri hálfleiks og jafnaði leikinn síðan í upphafi seinni hálfleiks. Jorge de Frutos skoraði markið og skömmu síðar voru gestirnir næstum því búnir að bæta við. Á 68. mínútu fékk Kylian Mbappé frábært færi til að taka forystuna á ný fyrir Real Madrid, hann komst framhjá markmanninum en skaut í slána fyrir opnu marki. ¡Al larguero @KMbappe! @realmadrid | LALIGAHighlights pic.twitter.com/CHqpA1YBk6— LALIGA (@LaLiga) February 1, 2026 Bæði lið fengu færi til að taka forystuna eftir það, heimamenn meira ógnandi en bláhærði hægri bakvörðurinn Andrei Ratiu fékk dauðafæri fyrir Vallecano. Staðan var samt enn jöfn í uppbótartíma, þrátt fyrir yfirburði Real Madrid og rautt spjald á miðjumann Vallecano, Pathé Ismael Ciss. Mikill hiti var inni á vellinum og í uppbótartíma fékk Real Madrid vítaspyrnu þegar miðvörðurinn Nobel Mendy hitti ekki boltann og sparkaði í magann á Brahim Díaz. Kylian Mbappé steig á punktinn og bætti upp fyrir klúðrið fyrr í leiknum. KM10. 🌟 pic.twitter.com/1vuxZI3Zcd— LALIGA (@LaLiga) February 1, 2026 Rayo Vallecano fékk annað rautt spjald, þegar komið var fram á þrettándu mínútu uppbótartíma. Josep Chavarría missti stjórn á sér og var rekinn í sturtu. Leiknum lauk síðan loksins eftir 105 mínútur og Real Madrid fagnaði mikilvægum sigri sem heldur liðinu einu stigi frá toppliði Barcelona.
Spænski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Sjá meira