Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Samúel Karl Ólason skrifar 23. janúar 2026 15:30 Ryan James Wedding sást síast á Starbucks í Mexíkóborg árið 2024, þá var vinstri myndin tekin af honum. Hann hefur verið á flótta frá 2015. Getty/Andrew Harnik Kanadamaðurinn Ryan Wedding, sem keppt hefur á Vetrarólympíuleikunum fyrir hönd Kanada, hefur verið handtekinn en hann var einn af þeim tíu mönnum sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vilja mest koma höndum yfir. Wedding hefur verið ákærður fyrir morð, smygl og peningaþvætti og hefur verið á flótta frá 2015.
Handtaka hans hefur ekki verið staðfest af yfirvöldum í Bandaríkjunum en fjölmiðlar vestanhafs segja að hann hafi verið handtekinn í Mexíkó og til standi að halda blaðamannafund um málið seinna í dag. Wedding keppti á Ólympíuleikunum árið 2002 en hann er nú 44 ára gamall og hefur verið á flótta frá yfirvöldum í Bandaríkjunum og Kanada í meira en áratug. Hann var fyrst ákærður í Kanada árið 2015 og sakaður um ýmis fíkniefnabrot og að hafa skipulagt og gefið skipanir um morð. Samkvæmt kanadíska ríkisútvarpinu sást hann síðast á Starbucks í Mexíkó í janúar 2024. Hann var einnig ákærður í Bandaríkjunum 2024 og er sakaður um að hafa stýrt glæpasamtökum sem smygluðu kókaíni frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada. Forsvarsmenn FBI höfðu heitið fimmtán milljónum dala fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku hans. Sjá einnig: Ólympíufari á lista yfir tíu eftirlýstustu glæpamenn FBI Pam Bondi, dómsmálaráðherra, hefur sagt að samtök þessi hafi flutt sextíu tonn af kókaíni á ári til Los Angeles í gegnum Mexíkó og samtökin hafi hagnast um meira en milljarð dala á ári hverju á smyglinu. Lengi hefur verið talið að Wedding hafi verið í felum í Mexíkó, þar sem hann mun hafa notið verndar Sinaloa-samtakanna víðfrægu, samkvæmt CNN. Hér að neðan má sjá sex mínútna langa frétt Ríkisútvarps Kanada um líf Weddings og hvernig hann varð alræmdur glæpamaður.
Bandaríkin Kanada Mexíkó Erlend sakamál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira