„Ég er bara Króati á morgun“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. janúar 2026 11:01 Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta. Vísir/Vilhelm Dagur Sigurðsson segir ávallt sérstakt að mæta Íslandi en hann mun stýra Króatíu gegn strákunum okkar á EM á morgun.
Ísland og Króatía mætast í fyrsta leik í milliriðli sem leikinn er í Malmö klukkan 14:30 á morgun. Skammt er stórra högga á milli hjá Króötunum sem töpuðu illa fyrir Svíum í lokaleik riðlakeppninnar í gær. Klippa: Dagur tilbúinn að takast á við strákana okkar Dagur var ekki fyllilega búinn að jafna sig á tapinu þegar fjölmiðlafólk bar að garði á hóteli króatíska landsliðsins í Malmö í morgun. „Það er svona varla. Það er smá pirringur í manni. Við spiluðum bara mjög illa. Auðvitað er sárt ef maður tapar á síðustu sekúndu með einu marki en ef maður spilar ekki nógu góðan leik verður maður pirraður,“ segir Dagur. Er spilamennskan áhyggjuefni? „Það er áhyggjuefni. Mér finnst við ekki hafa fundið taktinn. Við spiluðum tvo leiki við Þjóðverjana sem voru ekki nógu góðir. Það er ekkert launungarmál að við erum ekki að spila eins og í fyrra,“ segir Dagur en Króatía var gríðarsterkt á HM í fyrra sem fór að stórum hluta fram á heimavelli þeirra í Zagreb. Króatía vann þar meðal annars sigur á Íslandi sem skaut þeim króatísku áfram úr milliriðli á kostnað strákanna okkar. Dagur segir ávallt sérstakt að mæta Íslandi. „Það er alltaf eins og það er. Það er bara gaman að því. Það eru margir góðir vinir mættir á hótelið. Það styttist aðeins í brosið þegar maður hittir drengina. En ég er bara Króati þarna á morgun og gef allt í það,“ segir Dagur. Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í spilaranum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira