Tímabilið búið hjá Butler Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. janúar 2026 12:33 Jimmy Butler lenti í þriðju alvarlegu hnémeiðslunum á ferlinum í nótt. Tayfun Coskun/Anadolu via Getty Images Jimmy Butler hefur lokið leik á þessu tímabili með Golden State Warriors í NBA körfuboltadeildinni eftir að hafa slitið krossband í sigri liðsins gegn Miami Heat í gærkvöldi.
Warriors voru þarna að vinna sinn tólfta sigur í síðustu sextán leikjum en sigurinn reyndist afar dýrkeyptur. Butler féll til jarðar, án utanaðkomandi snertingar, um miðjan þriðja leikhluta og hélt sárkvalinn um hnéð. Nú hefur komið í ljós að krossband í hnénu er slitið og Butler mun því ekki spila meira á þessu tímabili. Fyrir kaldhæðni örlaganna var það gegn hans fyrrum félagi, Miami Heat, sem Butler meiddist. Hann eyddi nánast öllu síðasta tímabili í að reyna að losna frá félaginu og ganga til liðs við Golden State Warriors. Jimmy Butler reyndist mikill liðsstyrkur fyrir Golden State Warriors á síðasta tímabili. Michael Reaves/Getty Images Eftir að Butler kom til Warriors í fyrra var liðið eitt af betri liðum deildarinnar, en það datt síðan úr leik í úrslitakeppninni gegn Minnesota Timberwolves eftir að Stephen Curry meiddist í fyrsta leik viðureignarinnar. Stjórnendur félagsins byggðu á því fyrir þetta tímabil og héldu í kjarnann, Curry, Butler og Draymond Green, en nú er Butler dottinn út. Draymond hefur einnig verið að glíma við meiðsli og tók ekki þátt í leik gærkvöldsins. Jimmy Butler er orðinn 36 ára gamall og verður frá í hátt í heilt ár. Meiðslin setja Warriors í mikil vandræði því hann er á risasamningi og þá er óvíst hversu öflugur Butler verður þegar hann kemur til baka því þetta eru þriðju alvarlegu hnémeiðslin á hans ferli.
NBA Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Sjá meira