Breytingar, breytinganna vegna? Dóra Magnúsdóttir skrifar 19. janúar 2026 12:00 Ef það virkar – ekki laga það (e. if it works, don't fix it) er frasi sem margir tengja við og nota í daglegu lífi. Hægt er að taka mörg dæmi af svokölluðum „rebranding“ verkefnum í markaðssetningu þar sem tiltekin vara, sem er vel þekkt á markaði, fær nýtt nafn og nýjar umbúðir en kolfellur í sölu. Breyting breytinganna vegna og engum til gagns. Samfylkingin í borginni hefur verið á góðu flugi sl. mánuði og kemur e.t.v. sumum á óvart því umræðan er stundum á hinn veginn. Í maí sl. sýndi Gallup könnun fram á 26% fylgi flokksins og einn borgarfulltrúa umfram þá niðurstöðu sem varð í kosningunum 2022. Í júlí fékk flokkurinn tæplega 30% fylgi í könnun Maskínu. Þessi fylgisaukning skv. könnunum miðað við fyrri ár, átti sér stað eftir að Heiða Björg Hilmisdóttir núverandi borgarstjóri, tók við stjórnartaumunum í borginni og forðaði henni frá of-plotti Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar og fyrrverandi borgarstjóra, um samstarf með Sjálfstæðisflokki. Heiða Björg setti nýjan 5-flokka meirihluta saman í borginni, markvisst og faglega. Meirihluta sem hefur unnið þétt saman síðan í febrúar á síðasta ári. Undir hennar stjórn hefur núverandi meirihluti flutt og afgreitt fleiri tillögur um aðgerðir í borginni en fyrri meirihluti öll hin þrjú árin á undan. Og þannig leiðtogi er hún; vinnur heiðarlega og af ákafa en aldrei þannig að hennar verk snúist um hana sjálfa. Hún hefur sagt að pólitík eigi að snúast um að koma verkefnum í höfn með mannréttindi og jöfnuð að leiðarljósi. Ekki um um einstaklingana sem vinna verkin. Ólíkt fjölmörgum stjórnamálamönnum. Það segir kannski sína sögu að fólk sem hefur unnið með Heiðu, bæði Samfylkingunni og í öðrum flokkum styður hana alla leið, vegna þess að það þekkir hana sem konu sátta, samstöðu og framkvæmda. Nú er ákall um breytingar í borginni. Heiða Björg er ekki bara kona framkvæmda, hún á langa sögu um frumkvæði og breytingastjórnun og hefur leitt ýmiskonar erfið mál til lykta.Hún hlustar, tvinnar saman ólík sjónarmið og framkvæmir. Fyrir þau sem vilja breytingar í borginni má minna á að Heiða Björg: - átti frumkvæði að stofnun ofbeldisvarnarnefndar í Reykjavík. Í kjölfarið átti sér stað mikil og markviss vinna til að draga úr ofbeldi í borginni og styðja þolendur ofbeldis. Aðgerðir sem hafa ekki farið hátt en skipt þolendur miklu máli. Bjarkarhlíð - þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis var stofnuð í kjölfarið. Verkefnið Saman gegn ofbeldi sem hefur gjörbreytt og bætt samstarf lögreglu, félagsþjónustu og barnaverndar varðandi heimilisofbeldi. - beitti sér mjög fyrir málefnum fólks með miklar og flóknar þjónustuþarfir, þ.m.t. heimilislaust fólk. Hún hefur stuðlað að því að borgin innleiði og efli „Húsnæði fyrst“ (e. Housing First) nálgunina, með það markmið að tryggja fólki með miklar og fjölþættar þjónustuþarfir húsnæði áður en unnið er að öðrum velferðarúrræðum. Við munum mörg eftir því þegar Heiða Björg mætti aðstandendum heimilislausra fyrir utan Ráðhúsið. Þegar hún steig út fagnaði hópurinn henni með klappi vegna áherslna hennar og frumkvæðis í málaflokknum. Viðbrögð sem ekki flugu hátt enda fer oft ekki mikið fyrir jákvæðum fréttum í fjölmiðlum. Þetta er málaflokkur sem ég leyfi mér að fullyrða að enginn stjórnmálamaður hafi barist jafn ötullega fyrir. - tók við hlutverki varaformanns Samfylkingarinnar þegar flokkurinn var í mikilli lægð eftir hrun og samstarf með Sjálfstæðisflokknum. Hún fylgdi flokknum eftir á mun betri stað í íslenskri pólitík. Ekki sviðsljósinu eins og formaðurinn á þeim tíma en vann markvisst á bakvið tjöldin. Þetta vita allir sem þekkja til innra starfs flokksins. Að sama skapi stóð hún af sér mótframboð til varaformanns með glæsibrag árið 2020. - sigraði í kosningum um formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fyrsti formaðurinn af vinstri væng stjórnmálanna til að taka það sæti. Og sem formaður beitti hún sér fyrir fjölmörgum mikilvægum breytingum í anda jöfnuðar. - átti lykilþátt í því að leiða til lykta kjaradeilu sambandsins við kennara. Þar reyndi töluvert á bæði jafnaðarhugsjónina og fókus en hún stóð með kennurum, samningur var undirritaður og þeir gengu sáttir frá borði. - átti stóran hlut í að koma á gjaldfrjálsum máltíðum í grunnskólum borgarinnar sem er risastórt jafnaðarmál fyrir reykvískar fjölskyldur og hafði aldrei komist áður í forgang. Listinn er mun lengri (í fljótu bragði dettur mér í hug næturstrætó, samningur við ríkið um að 12 milljarða árlega í málaflokk fatlaðs fólks, frumkvæði í #metoo á sínum tíma og margt fleira). Ég lýk þessum pistli á að slagorði Heiðu í baráttunni, sem er „Heiða Björg - Lætur verkin tala“ sem er akkúrat það sem hún gerir. Frekar en að láta verkin snúast um sjálfa sig. Höfundur er fyrrverandi varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Sjá meira
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun
Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir Skoðun
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun
Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir Skoðun