„Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Árni Sæberg skrifar 19. janúar 2026 11:06 Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi. Vísir/Vilhelm Formaður Starfsgreinasambandsins segir blasa við að launafólk hafi verið svikið með gjaldskrár- og verðlagshækkunum, þvert á gefin loforð í síðustu kjarasamningsviðræðum. Veitur hafa hækkað fastagjald hitaveitu um nærri fimmtíu prósent á einu ári.
Þetta segir Vilhjálmur Birgisson í færslu á Facebook en tilefnið er frétt Morgunblaðsins um gjaldskrárhækkun Veitna. Þar kemur fram að Veitur hafi hækkað fastagjald hitaveitu um 48,9 prósent á einu ári, notkunargjald hitaveitu um 9,6 prósent og fastagjald rafmagns um 9,9 prósent. „Þetta er skýrt dæmi um gjaldagleði ríkis og sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu, þar sem byrðunum er velt yfir á almenning og það á sama tíma og nánast allur hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur er tekinn út í formi arðgreiðslna,“ segir Vilhjálmur. Gjaldagleði sem kyndi undir verðbólgu Þá segir hann að um leið blasi við að íslenskt launafólk hafi verið svikið, af því við gerð kjarasamninga árið 2024 hafi ríki, sveitarfélög og fyrirtæki í opinberri eigu sem og verslun og þjónusta lofað að halda aftur af gjaldskrár- og verðlagshækkunum. „Almennar launahækkanir samkvæmt kjarasamningum eru 3,5 prósent, á meðan gjöld á grunnþjónustu hækka um tugi prósenta. Þetta er ekki jafnvægi, þetta er ekki ábyrg hagstjórn, heldur gjaldagleði sem kyndir undir verðbólgu og bitnar beint á launafólki og heimilum landsins.“ Skýrt uppsagnarákvæði kjarasamninga Vilhjálmur minnir á að í næstu endurskoðun kjarasamninga sé skýrt ákvæði um að tólf mánaða verðbólga megi ekki vera yfir 4,7 prósentum, annars opnist heimild til að segja samningum upp næsta haust. „Því miður er margt sem bendir til þess að verðbólgan geti farið yfir þetta mark, ekki síst vegna gjaldagleði ríkis og sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu. Ef það gerist verður ekki launafólk sem ber ábyrgðina, heldur þeir sem sviku loforð sín um að halda aftur af gjaldskrár- og verðlagshækkunum og kusu þess í stað að velta kostnaðinum yfir á almenning.“
Kjaramál Verðlag Efnahagsmál Fjármál heimilisins Orkumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira