Magnaða Magnea í borgarstjórn! Guðrún Margrét Guðmundsdóttir og Inga Magnea Skúladóttir skrifa 19. janúar 2026 10:33 Þegar tvær vinkonur setjast niður og skrifa stuðningsgrein fyrir stórvinkonu sína kann fólk að halda að þær séu hlutdrægar. En þegar um eins magnaða konu og Magneu Marínósdóttur er að ræða þarf hvorki að kafa djúpt né þekkja út í hörgul til að sjá hversu framúrskarandi manneskja hún er. Magnea gefur kost á sér í 2. – 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fer fram 24. janúar nk. og mælum við eindregið með því Samfylkingarfólk láti ekki þetta einstaka tækifæri sér úr greipum renna! Magnea er gegnheil Samfylkingarkona enda stofnfélagi hennar. Hún hnikar hvergi þegar kemur að grunngildum jafnaðarstefnunnar enda er það hennar staðfasta hugsjón að stjórnmálin eigi að tryggja að öllum líði vel og hafi jafnan möguleika á að dafna. Fólk má sannarlega treysta því að hún lætur ekki hagga sér þegar almanna hagsmunir eru annars vegar eða verði nokkru sinni gómuð í sérhagsmunapoti eða öðru vafasömu. Magnea er stórgáfuð og eldsnögg að koma sér inn í mál, hversu sem flókin þau virðast, og einhendir sér í því að kynna sér allar hliðar málsins, af ákafa og elju. Stundum grunar okkur að þessi afkastamikla vinkona hafi úr fleiri klukkustundum sólarhrings að moða en við hin. Magnea hefur búið víða um heim og ber þess merki. Hún sér víðar og lengra frá sér en algengt er og kæmi eins og ferskur vindur inn í borgarstjórn, með sínar stóru hugmyndir og framtíðarsýn. Hún hugsar út fyrir kassann og væri óhrædd að koma með nýstárlegar lausnir sem aðrir koma jafnvel ekki auga á. Í huga Magneu er Reykjavík alþjóðleg borg enda rúmlega fimmtungur íbúa aðfluttur. Hún veit að fólkið er komið til að vera og vill að gert sé ráð fyrir því í öllum ákvörðunartökum sem hluta af heildinni. Magnea gerir sér fulla grein fyrir því að aðgerðir dagsins í dag hafa áhrif á framtíðina og þá borg sem Reykjavíkur verður, eftir 10, 20 eða 40 ár. Við gætum líklega haldið endalaust áfram að mæra þessa mögnuðu vinkonu okkar, Magneu Marínósdóttur, en látum hér við sitja. Við hvetjum alla með atkvæðisrétt í prófkjöri Samfylkingarinnar að nýta sér hann og kjósa þessa framúrskarandi konu í borgarstjórn. Höfundar eru Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur, og Inga Magnea Skúladóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar