EM í handbolta og lestrarkennsla Sigurður F. Sigurðarson skrifar 18. janúar 2026 22:31 Hvað skyldu tvö mest ræddu mál þessarar viku eiga sameiginlegt. Kíkjum aðeins á það og skoðum hvernig þessi mjög svo aðskildu mál tengjast. EM í handbolta EM í handbolta stendur nú yfir og þegar þetta er skrifað hefur Ísland spilað tvo leiki en talsvert fleiri hafa verið spilaðir, því eins ótrúlegt og það er þá eru fleiri lið en Ísland á EM að reyna að vinna til verðlauna. Úrslit flestra þessara leikja hafa gengið nokkuð eftir bókinni. Þjálfararnir skoða verkefnið (ef ég má nefna leikina því orði) og reyna að átta sig á því hvernig best er að nálgast það. Þegar verkefnavinnan hefst leggur þjálfarinn upp með ákveðna leikaðferð. Þegar líður á leikinn getur þjálfarinn séð þrennt. Planið er að ganga upp og allir skila sínu. Planið gengur alveg þokkalega en hann þarf að kippa einum eða tveimur út af og setja aðra inn á, á meðan hann ræðir málin við þá sem komu af velli. Leggur þeim línurnar að nýju og setur þá e.t.v. inn á aftur. Það þriðja og það mikilvægasta fyrir þjálfarann að sjá er ef ekkert gengur upp. Leikmennirnir ráða ekki við verkefnið með þeim verkfærum sem þjálfarinn setti upp í hendurnar á þeim og þeir eru bara byrjaðir að gera eitthvað til að fá færi. Þá þarf þjálfarinn að taka leikhlé. Hann kippir öllum leikmönnum, bæði þeim sem eru inn á og þeim sem eru á bekknum til sín og leggur upp Plan B. Það plan er annað en Plan A en þó með sömu markmið, að sigra í leiknum. Bæði Plan A og Plan B hafa verið prófuð margsinnis af þjálfaranum og hann veit að bæði plönin ganga upp ef rétt er haldið á spöðunum. Þjálfarinn þarf ekki að óttast það að stjórn handknattleikssambandsins ákveði leikaðferðina. Lestrarkennslan. Snúum okkur þá að lestrinum. Lestrarkennsluaðferðir virðast vera einhvers konar trúarbrögð. Þeir sem aðhyllast eina stefnu reyna að tala aðrar niður. Það hefur aldrei reynst vel að lítillækka aðra til að upphefja sjálfan sig. Kennarar eru þeir sem nýta sér lestrararkennsluaðferðir. Það fer eftir skólum hvaða aðferð er í forgrunni og lagt er upp með þegar lestrarkennsla hefst í grunnskólanum. Í mörgum tilfellum hefur einhver lestrarkennsla átt sér stað áður, bæði í leikskóla og heima. En þegar í grunnskóla er komið er ein aðferð lögð til grundvallar í upphafi. Ef einhver, eða einhverjir ná ekki tökum á þeirri aðferð þá, rétt eins og þjálfarinn, hefur kennarinn mörg vopn í farangrinum. Kennarar eru nefnilega þeim kostum búnir að einblína ekki á að troða ákveðinni aðferð upp á börn sem ná henni ekki heldur aðlaga námsefnið að börnunum og reyna fjölbreyttar aðferðir til að börn nái tökum á lestri. Kennurum er upp til hópa drullusama hvaða aðferð er notuð ef árangurinn er sá sami. Kennarar læra fjölbreyttar kennsluaðferðir og fjölbreyttar kennsluaðferðir eru til þess að ná til sem flestra með sama efnið. Í fjölda mörg ár hefur lestur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling verið kennd í skólum. Markmiðið er alltaf það sama. Að börn nái hæfni til að nýta sér þetta. Hvort barn noti skíðabrekku, skiptingu eða samsetningu talna til að deila skiptir ekki höfuðmáli, heldur að barnið kunni að deila. Við skulum því ekki eyða tíma í að ræða hvernig eitthvað er kennt í grunnskólum eða hvaða aðferð er notuð hvar. Við skulum ræða það ef lestur er ekki kenndur við grunnskóla, þá er eitthvað að. Við skulum líka ræða sjálfstæði skóla og kennara. Að það sé ekki troðið niður í hálsmál kennara einhverjum skylduaðferðum til að kenna eitthvað fag. Kennarar eru sérfræðingar á sínu sviði og það ber að treysta þeim til að kenna það sem nemendur eiga að læra. Kennarar eru nefnilega fyrir börnin í skólanum. Kennarar eru ekki í skólunum til að halda á lofti einhverjum aðferðum sem henta, eða henta ekki, þeim nemendum sem þeir eru að kenna. Skólastarfið snýst um að stunda fjölbreytt nám með fjölbreyttum aðferðum sem gefur nemendum fjölbreytta sýn á margbreytilegt umhverfi. Hengjum okkur ekki í einsleitnina. Höfundur er kennari við Brekkuskóla á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar