„Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2026 11:01 Alfreð Gíslasyni varð á í messunni undir lok leiks Þýskalands og Serbíu á Evrópumótinu í handbolta. getty/Sina Schuldt Sérfræðingar TV 2 í Danmörku voru gáttaðir á atvikinu undir lok leiks Þýskalands og Serbíu á EM í handbolta í gær. Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, tók leikhlé rétt áður en Þjóðverjar skoruðu og markið var dæmt af. Serbar enduðu á því að vinna leikinn, 30-27, og skildu Þjóðverja eftir í erfiðri stöðu í A-riðli.
Þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af leiknum í Herning í Danmörku í gær skoraði Juri Knorr og jafnaði í 26-26. Það hélt hann allavega en eftir að dómararnir höfðu kíkt á atvikið á myndbandi var markið dæmt af þar sem Alfreð tók leikhlé nokkrum sekúndubrotum áður en boltinn endaði í netinu. Eftir leikhléið tapaði Miro Schluroff boltanum og Serbar skoruðu í kjölfarið og komust tveimur mörkum yfir, 27-25. Þeir unnu svo leikinn með þriggja marka mun, 30-27. Eftir leikinn gekkst Alfreð við því að hafa gert mistök þegar hann tók leikhléið. „Ég vildi taka leikhlé á meðan það væri enn fullur kraftur í okkur. Því miður ýtti ég nokkrum sekúndubrotum of snemma á leikhléstakkann. Það er algjörlega mín sök,“ sagði Alfreð í viðtali við ARD eftir leik. Knorr, sem skoraði markið sem var dæmt af, var ekki sáttur í leikslok og þýskir fjölmiðlar telja að hann hafi skotið á Alfreð í viðtölum eftir leikinn. Kasper Hvidt og Claus Møller Jakobsen, sem fjölluðu um leikinn fyrir TV 2, skildu ekki hvað Alfreð gekk til á þessu örlagaríka augnabliki. „Hvernig getur Gíslason ekki fylgst með eigin sókn og séð að leikmaðurinn er að fá opið færi? Hann hlýtur að langa að skalla gólfið. Ég hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði gamli markvörðurinn Hvidt. Jakobsen sagði að Alfreð hefði ekki fylgst nógu vel með því sem var að gerast inni á vellinum. „Alfreð var ekki með á nótunum á lokamínútunum. Hann hafði enga yfirsýn yfir það sem var að gerast á vellinum. Af hverju stendur hann og horfir upp á stigatöfluna í stað þess að fylgjast með því sem er að gerast inni á vellinum?“ sagði Jakobsen gáttaður. Til að komast áfram í milliriðla þarf Þýskaland að vinna Spán á morgun auk þess að treysta á að Austurríki taki stig af Serbíu. Spánverjar eru á toppi A-riðils með fjögur stig, Serbar og Þjóðverjar eru með tvö stig en vegna sigursins í gær er serbneska liðið fyrir ofan það þýska. Austurríkismenn reka svo lestina í A-riðli en þeir eru án stiga.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Sjá meira