Segir ekkert til í því að Justin James sé á leið á Krókinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2026 12:16 Justin James verður ekki samherji Sigtryggs Arnars Björnssonar hjá Tindastóli. vísir/diego Formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir ekkert til í orðrómi þess efnis að Justin James sé á leið til liðsins, þrátt fyrir ummæli þjálfara Álftaness þar að lútandi.
Flökkusaga um að James myndi klára tímabilið með Stólunum fór á flug fyrir nokkrum dögum og í viðtali við Vísi eftir tap Álftaness fyrir Grindavík í gær, 83-79, sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari liðsins, að James væri á leið á Krókinn. James lék með Álftanesi seinni hluta síðasta tímabils. „Hann lét okkur vita að Tindastóll væri að tala við sig og ég held að hann sé að fara í Tindastól,“ sagði Hjalti aðspurður hvort James væri á leið til Álftaness. Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, kvað orðróminn um James í kútinn í samtali við Vísi í dag. „Hann er ekki að koma hingað. Ég veit ekki alveg hvernig þetta hefur farið af stað,“ sagði Dagur og bætti við að Stólarnir myndu klára tímabilið með núverandi leikmannahópi. „Við erum með mjög gott lið og höfum engar áhyggjur af því. Hann er ekki á leiðinni á Krókinn,“ sagði Dagur. Rætt var um ummæli Hjalta um James í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Burtséð frá sanngildinu höfðu sérfræðingarnir Sævar Sævarsson og Hlynur Bæringsson gaman af útspili Hjalta. „Ég held að þetta hafi sennilega aldrei gerst í sögu íþrótta á Íslandi þar sem einn þjálfari í liði tilkynnir að leikmaður sé á leiðinni í annað lið. Þetta er stórmerkilegt,“ sagði Sævar. „Það var enginn að spá í neinu svona fyrir x mörgum árum. Það er alltaf eitthvað að gerast í þessari deild, hvort sem það er eitthvað vit í því eða ekki. Ég verð að viðurkenna að þetta gladdi mig,“ sagði Hlynur. Klippa: Bónus körfuboltakvöld - umræða um Justin James James lék sautján leiki með Álftanesi í deildar- og úrslitakeppni á síðasta tímabili. Í þeim var hann með 23,5 stig, 6,3 fráköst og 4,6 stoðsendingar að meðaltali. Tindastóll, sem sigraði ÍR á fimmtudaginn, 101-90, er í 2. sæti Bónus deildarinnar með tuttugu stig, sex stigum á eftir toppliði Grindavíkur. Umræðuna úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Tindastóll UMF Álftanes Körfuboltakvöld Tengdar fréttir Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Grindavík sigraði Álftanes 83-78 í 14. umferð Bónus deildarinnar í kvöld. Allt var í járnum en Grindvíkingum tókst að sigla sigrinum heim á lokamínútum leiksins. 16. janúar 2026 18:45 Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Tindastóll vann 101-90 gegn ÍR í 14. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Dedrick Basile fór mestan fyrir heimamenn á Sauðárkróki en hann stimplaði þrefalda tvenna á tölfræðiblaðið í þessum örugga sigri. 15. janúar 2026 18:32 Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Grindavík sigraði Álftanes 83-78 í 14. umferð Bónus deildarinnar í kvöld. Allt var í járnum en Grindvíkingum tókst að sigla sigrinum heim á lokamínútum leiksins. 16. janúar 2026 18:45
Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Tindastóll vann 101-90 gegn ÍR í 14. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Dedrick Basile fór mestan fyrir heimamenn á Sauðárkróki en hann stimplaði þrefalda tvenna á tölfræðiblaðið í þessum örugga sigri. 15. janúar 2026 18:32