Gamla Íslendingafélagið gæti breytt aftur um nafn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2026 14:00 Sara Björk Gunnarsdóttir var leikmaður félagsins þegar það breytti síðast um nafn árið 2013. Hér er hún í leik með FC Rosengård. Getty/Simon Hofmann/ Sænska kvennafótboltafélagið FC Rosengård verður endurskipulagt frá grunni og nú gæti félagið einnig skipt um nafn eftir eigendaskiptin. „
Við munum mögulega skoða annað nafn,“ segir nýi meðeigandinn Rebecca „Bex“ Smith við Sydsvenskan. Í desember samþykkti FC Rosengård ákvörðun um hlutafélagavæðingu á aukaaðalfundi. Í vikunni kom Crux Football formlega inn sem fjárfestir og meðeigandi í kvennaliði FC Rosengård. Það er ekki aðeins eignarhaldið sem breytist í grundvallaratriðum. Stofnandi og forstjóri Crux, Rebecca „Bex“ Smith, tilkynnir nú að nafn félagsins, FC Rosengård, gæti heyrt sögunni til. Vörumerkið og sjálfsmyndin „Við þurfum að skoða hvað vörumerkið þýðir fyrir sjálfsmyndina og í kjölfarið mögulega skoða annað nafn og aðra liti félagsins, sem endurspegla raunverulega rétta sjálfsmynd þessa liðs,“ sagði Smith. View this post on Instagram A post shared by Sydsvenskan Sport (@sydsvenskan_sport) Bex Smith bætir við að hugsanleg nafnbreyting muni ekki fela í sér nafn fyrirtækis. Til þess að nafnbreyting gangi í gegn þarf að samþykkja breytinguna á aðalfundi og samkvæmt 51 prósents reglunni má Crux Football aðeins eiga 49 prósent atkvæða. „Tæknilegt atriði. Við erum með stjórn í eignarhaldsfélaginu með fulltrúum bæði frá félaginu og Crux og þar eru allir sammála um uppbyggingu og þróun þessa kvennaliðs. Allir vilja fara í sömu átt,“ segir Bex Smith. Annað nafn, aðrir litir „Við munum mögulega skoða annað nafn, aðra liti, annað vörumerki sem endurspeglar rétta ímynd kvennaliðs félagsins,“ segir Smith. Rosengård hefur verið mikið Íslendingalið en síðast til að spila með liðinu var Ísabella Sara Tryggvadóttir. Áður varð Guðrún Arnardóttir lykilmaður og sænskur meistari með félaginu auk þess að vera fyrirliði á síðustu tímabilum sínum. Þegar Ásthildur Helgadóttir gerði garðinn frægan hjá félaginu hér hét það Malmö FF Dam og Sara Björk Gunnarsdóttir var stjarna liðsins og margfaldur meistari með því þegar nafninu var breytt úr LdB FC Malmö í FC Rosengård.
Sænski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira