Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Rakel Sveinsdóttir skrifar 16. janúar 2026 07:01 Það er engin tilviljun að við upplifum oft létti þegar fundir falla niður. Því þetta er líffræðilegt viðbragð líkamans, sem slekkur á streitukerfi sem við ósjálfrátt kveikjum á þegar fundir eru boðaðir. Vísir/Getty Þetta gerist á sekúndubroti. En vá hvað það kemur góð tilfinning með þessu. Svona gerist þetta oftast:
Í dagatalinu er skráður fundur kl. 10.30. Svo sem enginn sérstakur fundur eða erfiður eða neitt. Bara fundur. Allt í einu dettur ég inn í pósthólfið: „Meeting canceled.“ Já, fundurinn fellur niður. Skiptir ekki máli hvers vegna. Það sem skiptir máli er hins vegar þetta: Þú last skilaboðin „Meeting canceled“ og svo… upplifðir þú létti! Axlarvöðvarnir slakna. Andardrátturinn verður dýpri. Þú brosir – jafnvel aðeins of mikið miðað við að „ekkert stórt“ hafi gerst. Flestir kannast við þessa tilfinningu og nú er hún farin að vekja athygli fræðimanna. Því þessi léttir sem fólk er að upplifa er engin tilviljun, heldur líffræðilegur. Í grein á RALI Online er rætt við sálfræðing sem útskýrir fyrir okkur, hvers vegna við erum að upplifa þennan létti. Skýringin er þessi:Fundir kveikja á streitukerfinu okkar. Þótt þeir séu litlir, stuttir, saklausir. Það er vegna þess að heilinn bregst ekki bara við því sem er að gerast núna, heldur líka því sem mögulega gæti gerst. Og þar sem fundir eru boðaðir með fyrirvara, veit heilinn að við þurfum að: mæta hlusta mögulega að tala og mögulega verðum við metin af öðru fólki fyrir það hvernig við erum á fundinum (félagslegt álag). Þegar við fáum síðan upplýsingar um að það verður enginn fundur, slekkur líkaminn á streitukerfinu og þá finnum við léttinn. Ágætis dæmi til samanburðar er til dæmis þegar við höldum að við séum búin að týna símanum eða lyklunum okkar. Þá kviknar á streitukerfinu, sem líkaminn slekkur síðan á aftur þegar við finnum dótið okkar og við upplifum létti. Annað dæmi getur verið þegar við eigum von á því að samtal geti orðið erfitt. Þá kveikir streitukerfið á sér og er á alveg þar til við eigum samtalið þar sem kemur í ljós að það er ekkert erfitt. Streitukerfið slekkur á sér og við upplifum létti. En það er líka svo áhugavert að velta fyrir sér: Hvað er þessi léttir samt að segja okkur? Hvað getum við lært af þessu? Því það að við séum að upplifa létti og ánægju yfir því að fundur falli niður, getur verið vísbending um að fundinn og jafnvel fundarmenninguna, megi endurskoða. Dæmi:Við getum upplifað létti þegar fundur fellur niður sem hafði óljósan tilgang, hefði verið mjög langur, er haldinn af vana frekar en þörf, skapar félagslegar aðstæður sem okkur líður ekki vel í og svo framvegis. Allt ofangreint er því hið fínasta tilefni fyrir vinnustaði til að velta fyrir sér hvernig fundarmenningin er innan þeirra vinnustaða. Sem er alltaf hollt og gott að gera reglulega.
Góðu ráðin Vinnustaðurinn Vinnustaðamenning Tengdar fréttir Fólkið sem allir kannast við af fundum Það kannast allir við þessar týpur því á fundum er það oft sama starfsfólkið sem talar of mikið, of lengi eða um ekki neitt. Það sama gildir um þá sem þegja alltaf og eru uppteknari í símanum en að fylgjast með fundinum. 21. ágúst 2020 09:00 Að halda fókus á ráðstefnum og fundum Hvort sem viðburður er haldinn rafrænt eða ekki, kannast margir við að missa einbeitinguna á ráðstefnum, málþingum, námskeiðum eða fundum. 11. febrúar 2022 07:01 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Þrátt fyrir allt þetta tal um kulnun eða styttingu vinnuvikunnar, er nýtt trend að sýna sig vestanhafs kallað 996 vinnuvikan. Sem eflaust er nokkuð algengara á Íslandi en margan grunar. 5. janúar 2026 07:01 Trendin 2026: Gervigreindin mikilvæg og laun mögulega auglýst Að þessu sinni förum við yfir möguleg trend og nýjar áherslur fyrir árið 2026 með Unni Ýri Konráðsdóttur, varaformanni Mannauðs, samtaka mannauðsfólks á Íslandi, og ráðgjafa hjá VinnVinn. 30. desember 2025 07:02 Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Áramótaheitin okkar virðast nokkuð fyrirséð. Og alþjóðleg. Í hinum vestræna heimi er alla vega nokkuð líklegt að við séum flest að strengja okkur sambærileg áramótaheit. 2. janúar 2026 07:02 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Sjá meira
Fólkið sem allir kannast við af fundum Það kannast allir við þessar týpur því á fundum er það oft sama starfsfólkið sem talar of mikið, of lengi eða um ekki neitt. Það sama gildir um þá sem þegja alltaf og eru uppteknari í símanum en að fylgjast með fundinum. 21. ágúst 2020 09:00
Að halda fókus á ráðstefnum og fundum Hvort sem viðburður er haldinn rafrænt eða ekki, kannast margir við að missa einbeitinguna á ráðstefnum, málþingum, námskeiðum eða fundum. 11. febrúar 2022 07:01
996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Þrátt fyrir allt þetta tal um kulnun eða styttingu vinnuvikunnar, er nýtt trend að sýna sig vestanhafs kallað 996 vinnuvikan. Sem eflaust er nokkuð algengara á Íslandi en margan grunar. 5. janúar 2026 07:01
Trendin 2026: Gervigreindin mikilvæg og laun mögulega auglýst Að þessu sinni förum við yfir möguleg trend og nýjar áherslur fyrir árið 2026 með Unni Ýri Konráðsdóttur, varaformanni Mannauðs, samtaka mannauðsfólks á Íslandi, og ráðgjafa hjá VinnVinn. 30. desember 2025 07:02
Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Áramótaheitin okkar virðast nokkuð fyrirséð. Og alþjóðleg. Í hinum vestræna heimi er alla vega nokkuð líklegt að við séum flest að strengja okkur sambærileg áramótaheit. 2. janúar 2026 07:02