Guðrún klæðist grænu á nýjan leik Sindri Sverrisson skrifar 15. janúar 2026 16:33 Guðrún Arnardóttir er orðin grænklædd á nýjan leik. Hammarby Íslenska landsliðskonan Guðrún Arnardóttir hefur fundið sér nýtt félag, eftir skamma dvöl í Portúgal, og snýr nú aftur í toppbaráttu sænsku úrvalsdeildarinnar til félags með íslenskan yfirmann íþróttamála.
Guðrún, sem er þrítugur varnarmaður með 57 A-landsleiki, hefur skrifað undir samning við Hammarby sem gildir út árið 2027. Hún þekkir sænsku úrvalsdeildina út og inn eftir að hafa þrisvar sinnum orðið Svíþjóðarmeistari með Rosengård. Guðrún fór frá Rosengård í fyrra til Braga í Portúgal en staldraði stutt við þar eða aðeins hálft ár. „Þessum stutta kafla er lokið. Stundum passa hlutirnir ekki saman en hver vegferð kennir þér eitthvað. Ég er þakklát fyrir reynsluna og frábæru samherjana mína. Opnum næsta kafla,“ skrifaði Guðrún í lok síðasta árs þegar hún kvaddi Braga. Nú er ljóst að sá kafli verður skrifaður hjá Hammarby. Yfirmaður íþróttamála hjá Hammarby er Skagamaðurinn Arnór Smárason sem fagnar komu Guðrúnar: „Við erum að fá landsliðskonu sem færir hópnum reynslu og þekkingu. Hún er leiðtogi með jákvætt hugarfar, hefur reynslu úr sænsku úrvalsdeildinni og af því að vinna titla. Guðrún er spennt og tilbúin að koma inn og leggja sitt af mörkum hjá Hammarby,“ segir Arnór á vef félagsins. Hammarby hafnaði í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, aðeins fjórum stigum á eftir meisturum Häcken.
Sænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Sjá meira