Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 17. janúar 2026 07:02 Högni Kjartan hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 23. desember síðastliðinn. Hann hefur neitað sök í málinu. Policía Nacional de Colombía Högni Kjartan Þorkelsson, sem situr í gæsluvarðhaldi í Medellín í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku, var í félagi við aðra ólögráða stúlku þegar hann var handtekinn þann 23. desember síðastliðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögregluyfirvöldum í Kólumbíu. Bauð stúlkunni peninga í skiptum fyrir kynmök Vísir greindi frá því þann 23. desember síðastliðinn að íslenskur karlmaður á fertugsaldri hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Medellín í Kólumbíu, grunaður um kynferðisbrot gegn 16 ára gamalli stúlku. Meint brot átti sér stað aðfaranótt 6. desember síðastliðinn. Fram kom að Íslendingurinn hefði verið nafngreindur á vefmiðlum ytra og kemur þar fram að hann heiti Högni Kjartan Þorkelsson og sé ferðamaður frá Íslandi. Samkvæmt yfirvöldum í Kólumbíu hafði Högni Kjartan samband við stúlkuna í San Diego-hverfinu í miðborg Medellín og bauð henni peninga í skiptum fyrir kynmök, áður en hann fór með hana í íbúð í Simón Bolívar-hverfinu í vesturhluta borgarinnar, þar sem kynferðisofbeldið á að hafa átt sér stað. Hann var handtekinn skömmu eftir atvikið, eftir að stúlkan slapp úr íbúðinni og leitaði til lögreglu. Samkvæmt skýrslum saksóknaraembættisins í Kólumbíu (Fiscalía General de la Nación) var stúlkan beitt kynferðislegu ofbeldi, og í sumum fréttum er einnig minnst á líkamlegt ofbeldi, svo sem barsmíðar. Klippa: Íslendingur handtekinn í Kólumbíu Lögð var fram ákæra á hendur Högna Kjartani þann 22.desember síðastliðinn, fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Fram kemur að Högni Kjartan neiti sök í málinu. Dómarinn féllst þó á kröfu saksóknara og úrskurðaði hann í gæsluvarðhald í þágu rannsóknarhagsmuna. Málið á borði borgaraþjónustunnar Fram kemur að brotaþolinn í málinu sé hluti af LGBTQ-samfélaginu. Hún hefur verið sett undir vernd barnaverndaryfirvalda í Kólumbíu (ICBF) á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Þegar Högni Kjartan var handtekinn var hann að sögn lögreglu í félagi við aðra ólögráða stúlku, 17 ára, auk móður hennar. Yfirvöld hafa lýst því yfir að verið sé að kanna hvort móðirin hafi með einhverjum hætti auðveldað eða liðsinnt við að koma á samskiptum milli þeirra, sem gæti leitt til sérstakrar rannsóknar á hennar hlut. Í samtali við Vísi staðfestir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins að mál Högna Kjartans sé komið inn á borð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Embættið veiti ekki frekari upplýsingar um einstök mál. Vakti athygli snemma fyrir sölumennsku Högni Kjartan hefur áður vakið athygli fjölmiðla hér á landi. Í viðtali við DV í júní 2008, þá 21 árs gamall, var hann kynntur sem ungur og afar umsvifamikill sölufulltrúi hjá Remax Þing, þar sem hann lýsti sjálfum sér sem „fæddum sölumanni“. Tilefni viðtalsins var að Högni Kjartan hafði keypt baksíðu símaskrárinnar undir auglýsingu, sem hann sagði sjálfur vera tilraun til að vekja jákvæða umræðu um fasteignaviðskipti á tímum niðursveiflu. Í sama viðtali kom fram að hann hefði þegar sem barn stundað viðskipti, meðal annars með sölu á körfuboltamyndum, og að hann hefði búið í Bandaríkjunum sem unglingur þar sem hann kynntist fasteigna- og lánamarkaði. Hann sagðist hafa unnið sem sölumaður hjá 365 miðlum áður en hann færði sig alfarið yfir í fasteignaviðskipti. Í júlí sama ár birtist annað viðtal við Högna Kjartan í Fréttablaðinu, þar sem sagt var frá því að hann hefði opnað myndlistarsýningu í versluninni Mohawks á Laugavegi, ásamt yngri bróður sínum. Þar kom fram að hann hefði stundað myndlist frá unga aldri, meðal annars vegglist og strigaverk, samhliða störfum sínum við fasteignasölu. Í viðtalinu sagði Högni myndlistina vera sitt áhugamál, en fasteignasöluna sitt aðalstarf. Hann kvaðst ekki hafa áhyggjur af sölu verka sinna, enda væri hann „mikill sölumaður að upplagi“. Í janúar 2018 fjallaði DV um mál tengt listaheiminum í Reykjavík, þar sem Högni Kjartan kom við sögu í tengslum við ásakanir sem þá voru til umfjöllunar. Sú umfjöllun tengist ekki núverandi máli í Kólumbíu, en er hluti af opinberri fjölmiðlasögu hans hér á landi.
Íslendingar erlendis Kólumbía Kynferðisofbeldi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira