Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Sindri Sverrisson skrifar 14. janúar 2026 17:32 Hannah McLaughlin styrkir vörn nýliðanna í sumar. Grindavík/Njarðvík Nýliðarnir í Bestu deild kvenna í fótbolta, sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur, hafa tryggt sér „frábæran varnarmann“ fyrir átökin í sumar.
Samkvæmt nýbirtum drögum KSÍ mun Grindavík/Njarðvík hefja leik í Bestu deildinni á því að spila við Val 25. apríl, og taka svo á móti Þór/KA á Stakkavíkurvelli fimm dögum síðar. Suðurnesjaliðið verður þar með hina 22 ára gömlu Hannah McLaughlin innanborðs. Hún er miðvörður sem útskrifaðist í fyrra frá Vanderbilt háskólanum. Hún lék fyrir skólaliðið í SEC-riðlinum í bandaríska háskólaboltanum sem liðið vann í fyrra. Miðað við skrif McLaughlin á Instagram er hún afar trúuð og þakklát fyrir tíma sinn hjá Vanderbilt, og vonandi fyrir Suðurnesjamenn að upplifunin verði sú sama hjá liði Grindavíkur/Njarðvíkur. „Þakka þér Jesús fyrir Vanderbilt - Hvílík blessun sem þetta hefur reynst,“ skrifaði McLaughlin þegar hún kvaddi skólann sinn. „Vá. Drottinn hefur verið mér svo góður. Fótboltalið Vanderbilt hefur verið svo góð gjöf og ég gæti ekki verið þakklátari fyrir síðustu þrjú og hálft ár mitt hérna,“ skrifaði hún einnig. Um er að ræða fyrsta skref McLaughlin í atvinnumennsku og fyrsti þjálfari hennar þar, Gylfi Tryggvason, hafði þetta að segja um nýja leikmanninn: „Hannah er frábær varnarmaður með góðan leikskilning og staðsetningar og virkilega fær með boltann. Hún er mikill leiðtogi og frábær karakter sem mun reynast okkur vel í sumar.“
Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Gylfi valinn besti leikmaður ársins Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“