„Hlutir sem ég hefði ekki getað gert ef ég væri að spila“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. janúar 2026 09:33 Remy Martin er magnaður leikmaður með skýr markmið. Remy Martin sneri aftur á körfuboltavöllinn í gærkvöldi eftir tæplega tveggja ára baráttu við meiðsli. Hann lýsir síðustu misserum sem ljúfsárum tíma í sínu lífi.
Remy átti fínan leik með liði Keflavíkur í hádramatískum sigri gegn Val í átta liða úrslitum bikarsins. Hann skoraði 13 stig, gaf 9 stoðsendingar og greip 7 fráköst, en varð svo fyrir smávægilegu hnjaski og spilaði ekki síðustu mínútur leiksins. Egor Koulechov skoraði magnaða þriggja stiga körfu sem tryggði Keflavík sigurinn og áframhald í undanúrslit. Fyrir leikinn ræddi Remy við Val Pál Eiríksson um meiðslabaráttuna hjá sér síðustu tvö árin en hann sleit hásin í undanúrslitaeinvígi Keflavíkur og Grindavíkur vorið 2024, skömmu eftir að hafa orðið bikarmeistari. „Þetta var ljúfsár tími. Þetta gerði mér kleift að sinna fjölskyldunni og mynda sterk tengsl. Auðvitað var erfitt að geta ekki spilað íþróttina sem ég elska, en ég fékk að verja tíma með fjölskyldunni. Ég gat fylgst með frænku minni vaxa úr grasi, allir þessir hlutir sem ég hefði ekki getað gert ef ég væri að spila. Þannig að það fer eftir því hvernig þú lítur á það. Já, þetta var mjög erfitt á köflum, en fólkið í kringum mig lét mér bara líða eins og ég væri í fríi.“ Nú setur Remy stefnuna á titilinn sem hann sá renna sér úr greipum í þessum örlagaríka leik gegn Grindavík. Ásamt því að verða bikarmeistari í annað sinn. „Augljóslega er markmiðið að vinna titla, þess vegna kom ég hingað, til að hjálpa þeim að ná meistaratitlinum. Ég er með frábæran þjálfara, liðsfélaga og stuðningsmenn. Ég er í rauninni með allt sem ég þarf, nú þarf ég bara að komast út á gólf og spila körfubolta. Ég hef haldið mér í formi og sinnt því sem þarf að sinna til að vinna titilinn. Við þurfum að bæta okkur, á hverjum degi, sem einstaklingar og lið en líka sem manneskjur.“
Bónus-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira