Reyna aftur að fá Helga Bjart á bak við lás og slá Árni Sæberg og Bjarki Sigurðsson skrifa 12. janúar 2026 16:37 Karl Ingi Vilbergsson er saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, um að hafna kröfu um gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti Þorvarðarsyni, sem ákærður hefur verið fyrir að nauðga tíu ára dreng, til Landsréttar.
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu embættisins um gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti á grundvelli almannahagsmuna á föstudag. Lögregla hafði ekki farið fram á gæsluvarðhald en þegar Héraðssaksóknari ákvað að ákæra Helga Bjart var það gert. Til þess að sakborningur verði úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna þarf sterkur grunur um að hann hafi framið brot það sem hann er sakaður um að liggja fyrir. Svo virðist sem dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafi ekki talið slíkan grun liggja fyrir. Nú fellur það í skaut dómara við Landsrétt að ákveða hvort tilefni sé til þess að hneppa Helga Bjart í gæsluvarðhald. Landréttur má úrskurða í kærumáli að liðnum sólarhring frá kæru eða eftir að málsaðilar hafa skilað greinargerðum sínum til réttarins. Réttinum ber að kveða upp úrskurð svo fljótt sem kostur er. Foreldrarnir ósáttir með að hann gangi laus Foreldrar drengsins sem Helgi er grunaður um að hafa brotið á ræddu málið við Vísi um helgina. Þau segjast hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar héraðsdómur hafnaði gæsluvarðhaldskröfunni. Þau upplifa sig í fangelsi á heimili sínu meðan Helgi gengur laus. „Þetta er verknaður manneskju sem getur verið fullkomlega fær að gera slíkt aftur. Þetta er ekki eitthvað sem gerðist heldur eitthvað sem einhver gerði,“ sagði móðirin í sláandi viðtali sem lesa má í heild sinni hér fyrir neðan.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Dómsmál Lögreglumál Hafnarfjörður Tengdar fréttir Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Embætti héraðssaksóknara ákveður í dag hvort úrskurði héraðsdóms um að hafna gæsluvarðhaldskröfu yfir manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði verði áfrýjað til Landsréttar eða ekki. 12. janúar 2026 10:37 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira
Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Embætti héraðssaksóknara ákveður í dag hvort úrskurði héraðsdóms um að hafna gæsluvarðhaldskröfu yfir manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði verði áfrýjað til Landsréttar eða ekki. 12. janúar 2026 10:37