Sunnlendingar sóttu síðasta farseðilinn eftir mikla spennu Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2026 19:55 Hamar/Þór hefndi í kvöld fyrir tapið gegn Ármanni í Bónus-deildinni í síðustu viku. vísir/Anton Hamar/Þór varð í kvöld fjórða og síðasta liðið til að tryggja sig inn í úrslitavikuna í VÍS-bikar kvenna í körfubolta, með sigri gegn Ármanni í æsispennandi leik í Laugardalshöll, 86-82.
Ármann hafði unnið nauman sigur í leik liðanna í Bónus-deildinni síðasta miðvikudagskvöld og því mátti búast við spennu í kvöld. Ármann var 29-21 yfir eftir fyrsta leikhluta en gestirnir af suðurlandi hófu annan leikhluta af miklum krafti og komust fimm stigum yfir, 36-31. Þeir voru svo ellefu stigum yfir í hálfleik, 54-43, eftir að hafa unnið annan leikhluta 33-14. Ármann minnkaði hins vegar forskotið fljótt og úr varð afar spennandi seinni hálfleikur. Hamar/Þór var aðeins stigi yfir, 83-82, fyrir lokamínútuna en fékk ekki á sig stig eftir það og Jadakiss Guinn innsiglaði sigurinn með tveggja stiga körfu og svo víti í næstu sókn, án þess að Ármann næði að svara. Það verða því Hamar/Þór, Tindastóll, Grindavík og Keflavík sem spila í undanúrslitum VÍS-bikarsins og eru aðeins tveimur sigrum frá bikarmeistaratitlinum. Guinn og Ana Clara Paz voru stigahæstar hjá Hamri/Þór í kvöld með 26 stig hvor og Jovana Markovic skoraði 16 og tók 13 fráköst. Hjá Ármanni var Dzana Crnac stigahæst með 22 stig og Nabaweeyah Mcgill skoraði 21 og tók 12 fráköst.
Hamar Þór Þorlákshöfn Ármann VÍS-bikarinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira