Ísabella aftur heim frá sænska stórveldinu Sindri Sverrisson skrifar 9. janúar 2026 21:15 Ísabella Sara Tryggvadóttir hefur skrifaði undir samning til þriggja ára við Val. Valur Fótboltakonan efnilega Ísabella Sara Tryggvadóttir hefur spilað sinn síðasta leik fyrir sænska stórveldið Rosengård og snýr aftur á Hlíðarenda.
Uppfært kl. 21:28 - Valur hefur nú staðfest komu Ísabellu og greint frá því að samningur hennar sé til þriggja ára. „Við erum gríðarlega ánægð með að fá Ísabellu til Vals. Hún er lykilleikmaður í því verkefni sem við erum að byggja upp hér,“ segir Gareth Owen, tæknilegur stjórnandi Vals, í tilkynningu félagsins. „Tæknileg geta hennar og hungur inni á vellinum er einstakt og hún endurspeglar nákvæmlega það DNA sem við viljum sjá í þessu félagi. Í fótbolta horfir maður ekki aðeins á leikmanninn heldur einnig manneskjuna. Ísabella hefur stórt hjarta og er mikil fagmanneskja sem mun hvetja alla í kringum hana,“ segir Owen. Haft er eftir Ísabellu sjálfri að hún sé afar spennt fyrir framhaldinu hjá Val sem eftir mikið velmegunarskeið endaði aðeins í 6. sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð. „Ég er virkilega spennt að koma aftur heim í Val. Það er einstök tilfinning að fá tækifæri til að snúa aftur, leggja sitt af mörkum og vera hluti af þessum stóra klúbbi. Valur hefur mikla þýðingu fyrir mig og ég mun gera allt mitt til að hjálpa liðinu að ná góðum árangri og koma Val aftur í fremstu röð.“ „Ég finn mikinn spenning fyrir þeirri framtíðarsýn sem Valur er að byggja upp. Hér ríkir metnaður, skýr stefna og sterk trú á að gera hlutina af fagmennsku, bæði innan vallar og utan. Að fá að vera hluti af þessari vegferð er ótrúlega spennandi og eitthvað sem ég hlakka mikið til að taka þátt í.“ Vann tvo stóra titla áður en hún hélt til Rosengård Ísabella hélt út til Svíþjóðar í atvinnumennsku síðasta vor, eftir að hafa náð að verða bæði Íslands- og bikarmeistari á tveimur árum með Val en hún er uppalin hjá KR. Hún lék alls 24 leiki fyrir Rosengård sem er sigursælasta félag í sögu sænska kvennafótboltans. Eftir að hafa orðið Svíþjóðarmeistari í fjórtánda sinn (fyrst undir merkjum Malmö en síðar sem Rosengård) árið 2024 var Rosengård á allt öðrum slóðum í fyrra og náði aðeins að bjarga sér frá falli með því að vinna tvo síðustu leiki sína. Ísabella á að baki 48 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 14 mörk. Hún hefur leikið 58 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 11 mörk.
Sænski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira