Tökum Ísland til baka Baldur Borgþórsson og Sigfús Aðalsteinsson skrifa 3. janúar 2026 14:03 Ísland, eyjan okkar í Norður-Atlantshafi hefur lengi verið þekkt sem paradís náttúru og friðar. Með dramatísku landslagi þar sem fossar, jöklar og eldfjöll mætast, er myndin mjög falleg. Auk þessa þá hefur landið toppað alþjóðlega lista yfir öruggustu og friðsömustu þjóðir heims. En nú er þessi veruleiki að hrynja. Árið 2015 ákváðu stjórnvöld að opna landamæri landsins upp á gátt og láta woke fólk í stjórn dyravörslu landamæra okkar. Fyrirséðar slæmar afleiðingar þessarar ákvörðunar hafa ekki látið á sér standa og er í því sambandi skemmst að minnast orða fyrrum varðstjóra lögreglunnar og núverandi þingmanns um að skipulögð glæpasamtök séu komin til að vera - að við höfum tapað baráttunni! Kostnaður vegna hælisleitenda og flóttamanna hefur á sama tíma þúsund faldast og meira til! Hinum venjulega Íslending er haldið í skefjum með hótunum vilji hann tjá sína sjálfstæðu skoðun um það ástand sem upp er komið og þöggun er beitt af krafti. Allar mótbárur um „dyravörslu“ þessa öfgahóps sem kallar sig woke eru barðar niður með úthrópunum,útskúfun og slaufun með dyggri aðstoð fjölmiðla, ekki síst Rúv. En nú hefur hinn almenni borgari fengið nóg af opnum landamærum. Innrás glæpahópa og hælisleitenda sem „dyraverðirnir“ kalla kærkomna gesti og dásamlega viðbót við „fjölmenningu“ landins. Gestir sem koma inn á heimili fólks, hafna húsreglum og normum, stela, ræna og rupla eru ekki velkomnir og er að sjálfsögðu vísað á dyr. Hið sama á að gilda um landið okkar: Erlendir aðilar sem hingað koma og gerast sekir um glæpi skal umsvifalaust svipta landvistarleyfi,vernd,ríkisborgararétti eða hverju því sem leyfir veru þeirra hér og vísa úr landi með endurkomubanni. Snúum frá stefnu sem á endanum tortímir þessari fallegu eyju okkar, friðnum sem við þekkjum. Landinu sem við tókum við til að gæta og skila áfram til þeirra sem á eftir okkur koma. Stoppum óvelkomna gesti í hurðinni og sendum úr landi þá sem hingað hafa komið en sýna samfélagi okkar óvirðingu og vanþakklæti – fara gegn okkar normum, menningu, lögum og reglum. Rekum dyraverðina og setjum aðila í hurðina sem elska landið sitt og munu hiklaust halda þessari svokölluðu „dásamlegu fjölmenningu“ utan landamæra okkar. Við verðum að skilgreina þörfina, eiga innviði og grundvöll til að taka á móti þeim sem hingað vilja koma og ekki hika við að senda burt þá sem eiga ekki skilið að vera hér. Við þurfum ekki að ganga í gjaldþrota samtök, þurfum ekki hlusta á “loftslagsrök” sem eru til þess eins að innheimta skatta svo viðkomandi samtök geti stækkað og veislan orðið fjölmennari. Við getum þetta sjálf, án fjölmenningar, inngildingar og allra þeirra orða sem sköpuð hafa verið um óheftan innflutning á „kerfisfræðingum og sérfræðingum“. Ekki gera ekki neitt. - Ekki segja Ísland er svona eða hinsegin! Minnumst frekar textans í einu vinsælasta ættjarðarljóði Íslendinga, ljóði eftir Margréti Jónsdóttur „Ísland er land þitt og ávallt þú geymir“ Við sem hér lifum verðskuldum að njóta afurða erfiðisins, ekki að stjórnmálamenn gangi um með fjármuni okkar, íslensku þjóðarinnar, innanlands og erlendis og dreifi þeim í einhverja dyggðaflöggun egósins. Með slíku framferði skerða þeir menntun, félagslega aðstoð ungmenna og hafna aðstoð við fólkið okkar sem þarf stoð og stuðning þar með talið gamla fólkið okkar. Þörf landsmanna á að geta treyst á heilbrigðiskerfið okkar hefur verið kastað fyrir róða og svo mætti lengi telja. Við heyrum æ oftar samlanda okkar segja frá því að þeim líði orðið eins og gestum í eigin landi. Erum við virkilega komin á þann stað að skatta-, vaxta- og skoðanapínd íslenska þjóðin skuli mæta afgangi? Stöðvum þetta leikrit á Alþingi og í Ráðhúsinu. Tími alvöru breytinga er runninn upp. Tökum Ísland til baka. Höfundar eru forsvarsmenn Íslands þvert á flokka og Okkar borgar, framboðs til borgarstjórnar 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar