Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2026 06:51 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast á nýársnótt þar sem mikið var tilkynnt um slys vegna flugelda, hávaða vegna samkvæma, ofurölvi einstaklinga og elda í gróðri eða húsum. Sömuleiðis var mikið um ólæti í miðbæ Reykjavíkur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir að lögregla hafi handtekið mann í miðborg Reykjavíkur vegna gruns um að hann hafi stungið annan mann með hníf. Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi og hafði sjúkralið komið á vettvang og hlúð að þeim sem fyrir árásinni varð. Sá reyndist ekki í lífshættu og var árásarmaður vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Einnig segir að maður hafi verið handtekinn í Reykjavík vegna eignaspjalla, líkamsárásar og vörslu fíkniefna. Þá var tilkynnt um eld í einbýlishúsi en verið er að gera húsið upp og því var enginn inni þegar eldurinn kom upp. Í tilkynningunni segir einnig að erlendur maður hafi verið handtekinn eftir að hafa hlaupið frá lögreglu, en sá reyndist eftirlýstur og stendur til að flytja hann úr landi. Nokkuð var um að ökumenn væru teknir fyrir að aka undir áhrifum áfengis. Í einu tilvikinu var tilkynnt um umferðarslys þar sem ökumaður hafði hlaupið frá vettvangi. Sá var grunaður um ölvun við akstur og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins eftir blóðsýnatöku.
Lögreglumál Áramót Reykjavík Flugeldar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira