Jókerinn fer jákvæður inn í nýja árið Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. desember 2025 12:31 Nikola Jokic kom vel út úr myndatöku vegna meiðsla sem hann varð fyrir í fyrradag. Justin Edmonds/Getty Images Betur fór en á horfðist með meiðsli Nikola Jokic, miðherja Denver Nuggets í NBA deildinni. Hann verður þó frá í að minnsta kosti fjórar vikur.
Jókerinn, sem hefur þrisvar verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar og þykir líklegur til að vinna verðlaunin aftur í ár, fór meiddur af velli í fyrradag og gekkst undir rannsóknir í gær. Óttast var að Serbinn, sem sárasjaldan glímir við meiðsli, hefði slitið krossband í hnénu og yrði frá út tímabilið, en myndataka leiddi í ljós að ekkert er slitið. Stuðningsmenn Denver Nuggets geta því andað léttar og hlakkað til þess að sjá sinn besta leikmann stíga aftur út á gólf síðar á þessu tímabili. Talið er að Jokic verði frá í um fjórar vikur en hann er að eiga sögulega gott tímabil, með 29.6 stig, 12.2 fráköst og 11 stoðsendingar að meðaltali í leik, og gæti orðið sá fyrsti í NBA deildinni til að hitta úr 60 prósent af tveggja stiga skotum og 40 prósent af þriggja stiga skotum sínum yfir heilt tímabil. Liðið er í þriðja sæti vesturdeildar NBA en mátti ekki við þessum meiðslum því nú þegar eru þrír byrjunarliðsmenn meiddir, þeir Christian Braun, Aaron Gordon og Cameron Johnson. Þetta er í fyrsta sinn á ferli Jokic sem hann verður frá vegna meiðsla í meira en fimm leiki. Ef hann missir af meira en fimmtán leikjum er hann ekki lengur gjaldgengur til að verða valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar.
NBA Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira