Þetta er vitað um banaslysið sem Anthony Joshua slapp lifandi úr Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2025 16:42 Anthony Joshua var í heimsókn hjá fjölskyldu sinni í Nígeríu yfir jólahátíðina og á leið heim þegar slysið varð. Getty/Ed Mulholland/ Hnefaleikkappinn Anthony Joshua hlaut aðeins minni háttar meiðsl í bílslysi í Nígeríu í dag þar sem tveir létust.
Hnefaleikakappinn var á leið frá Lagos til heimilis fjölskyldunnar, að sögn ættingja hans. Slysið varð í morgun þegar Joshua var á ferð á mjög fjölfarinni hraðbraut, en hann var í aftursæti Lexus-bifreiðar. Það hafa birst myndir af honum í bílnum eftir slysið sem og myndir af bílnum mjög illa förnum. Einn mannskæðasti vegur landsins Vegurinn er almennt þekktur sem Lagos-Ibadan-hraðbrautin og hefur verið lýst af staðbundnum fjölmiðlum sem einum af mannskæðustu vegum Nígeríu. Lagos-Ibadan-hraðbrautin tengir saman Ibadan, höfuðborg Oyo-fylkis, og Lagos, stærstu borg Nígeríu. Hún er 127 kílómetrar að lengd. Umferðin á veginum er sérstaklega mikil á þessum árstíma þar sem margir Nígeríubúar sem búa erlendis ferðast heim til landsins til að halda hátíðirnar. Breska ríkisútvarpið hefur aflað sér upplýsinga um slysið og má finna hér fyrir neðan það sem er vitað. Fimm voru i bílnum Fimm menn voru í bílnum þegar hann lenti í árekstri við kyrrstæðan vörubíl við vegkantinn, að sögn yfirvalda. Umferðaröryggisstofnun Nígeríu segir að bíllinn, Lexus-jeppi, sé grunaður um að hafa ekið yfir hámarkshraða og misst stjórn á honum við framúrakstur. Tveir létust í slysinu en Joshua var bjargað á lífi – hlaut minni háttar meiðsl – og tveir aðrir sluppu ómeiddir. Myndir sem umferðaröryggisstofnunin birti sýna slysstaðinn. Yfirvöld segja að lögregla hafi verið komin á vettvang innan þriggja mínútna frá því að tilkynnt var um atvikið. Einn af ættingjum Joshua segir við BBC að fréttir af slysinu hafi komið fjölskyldunni „í opna skjöldu“. „Við vonumst eftir skjótum bata hans og biðjum fyrir sálum þeirra sem létust,“ bætir ættinginn við. Tveir erlendir karlmenn létust Stjórnvöld í Ogun-fylki segja að þeir tveir sem létust í slysinu hafi verið „tveir erlendir karlmenn“, samkvæmt bráðabirgðaskýrslum. Stjórnvöld í Ogun segja að Joshua og bílstjóranum hafi verið bjargað úr bílnum af öryggisvörðum sem voru með honum í för. Nokkrum klukkustundum fyrir slysið birti Joshua myndband á Instagram þar sem hann spilaði borðtennis við annan mann. Fyrrverandi heimsmeistarinn í þungavigt hafði dvalið í Nígeríu eftir nýlegan bardaga sinn við Jake Paul þann 19. desember. Langafi hans auðugur landeigandi Anthony Oluwafemi Olaseni Joshua fæddist í Watford á Englandi en hefur oft talað stoltlega um nígerískan uppruna sinn. Joshua-ættin er vel þekkt í Sagamu í suðvesturhluta Nígeríu og rekur ættir sínar þangað nokkrar kynslóðir aftur í tímann. Langafi hans, Daniel Adebambo Joshua, var auðugur landeigandi og kaupmaður sem er talinn hafa tekið upp Joshua-eftirnafnið eftir að hafa snúist til kristni. Stoltur af Nígeríutengslunum Eitt skýrasta merkið um stolt Joshua af uppruna sínum er húðflúr af Afríku á hægri öxl hans þar sem útlínur Nígeríu eru greinilegar. Í bardögum hans er nígeríski fáninn reglulega sýndur við hlið breska fánans í hringnum, meðal annars eftir sigur hans á Jake Paul fyrr í mánuðinum. Í Ogun, þar sem Joshua er íþróttasendiherra, eru áform um að byggja nýjan innanhússhnefaleikavettvang sem nefndur verður eftir fyrrverandi heimsmeistaranum í þungavigt.
Box Nígería Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu Sjá meira