Var frústreraður vegna landsliðsins Valur Páll Eiríksson skrifar 24. desember 2025 21:00 Dagur Dan hefur spilað fimm A-landsleiki, sem hann telur að gætu verið fleiri. Bob Drebin/ISI Photos/Getty Images Dagur Dan Þórhallsson segist hafa viljað fleiri tækifæri með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta á undanförnum árum þegar sem best gekk hjá honum vestanhafs. Hann segist hins vegar ekki endilega hafa átt skilið sæti í ár.
Dagur Dan er 25 ára gamall skipti nýverið frá Orlando City í MLS-deildinni til Montreal Impact þar sem hann mun leika á nýju ári. Hann hefur spilað sem hægri bakvörður sem hefur verið ákveðin vandræðastaða hjá landsliðinu síðustu misseri og margir leikið þar með misgóðum árangri. Aðspurður um landsliðið segist Dagur vonast til að góð spilamennska á nýjum stað skili sér í auknum tækifærum en hann hefur aðeins spilað fimm landsleiki fyrir Íslands hönd. „Við eigum marga góða leikmenn en mér finnst ég nógu góður, alveg klárlega. Ég þarf bara að spila, skora og ég gera hluti. Ef ég hefði verið hjá Orlando var það ekki að fara að gerast,“ segir Dagur sem hafði misst stöðu sína síðustu vikurnar vegna efnilegs og öflugs heimamanns sem kom upp í sömu stöðu. Hann hafði hins vegar verið fastamaður árin á undan og staðið sig vel. „Mér fannst það kannski áður, frá 2022 til 2024, þegar ég var að spila alla leiki, allar mínútur og standa mig. Ég var einn besti hægri bakvörður deildarinnar. Mér fannst dálítið litið niður á deildina. En í ár, 2025, var ég ekki að spila nóg til að komast í landsliðið,“ segir Dagur Dan. Fleira kemur fram í viðtali við Dag þar sem farið er um víðan völl. Viðtalið má sjá í spilaranum. Klippa: Dagur Dan ræðir Evrópudrauma, landsliðið og lífið
Bandaríski fótboltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Sport Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Enski boltinn Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Fótbolti Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Fótbolti Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Handbolti „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Heppnin með Bayern á leið í langþráð undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Heppnin með Bayern á leið í langþráð undanúrslit Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki Sverrir heimsótti óvinnandi vígi Viktor fór illa með færin en fagnaði sigri gegn Ísaki Sjö marka skellur hjá Blikum í Svíþjóð City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Hörður Björgvin fiskaði rautt en féll úr leik í bikarnum „Þetta er allt annað dæmi“ Atvinnulaus Jóhann kallaður í landsliðið Íslenska deildin byrjar langsíðust Hætti við að panta flug til London og samdi í staðinn til 2028 Frank rekinn frá Tottenham Mætt í fyrsta sinn til Evrópu og klár í erfiða áskorun með Blikum í dag Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Mögulegur framtíðarstjóri Manchester United missir starfið Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tómas hetjan á dramatískan hátt í Edinborgarslagnum Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Stórsér á Jóni Degi eftir fyrstu dagana í Brann Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sjá meira