Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. desember 2025 12:30 DJI drónar eru einna vinsælastir. Getty Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna, FCC, hefur sett bann á innflutning erlendra dróna til landsins. Drónar framleiddir í Kína hafa lengi verið ráðandi á bandarískum markaði.
FCC hefur sett dróna sem framleiddir eru fyrir utan Bandaríkin á lista yfir aðila sem taldir eru „óásættanleg áhætta fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna“. Meðal framleiðenda er DJI, stærsti drónaframleiðandi heims sem kemur frá Kína. FCC sagðist hafa byggt bannið á niðurstöðu fjölþjóðlegrar nefndar á vegum Bandaríkjamanna. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að drónar erlendis frá og íhlutir þeirra gætu gert öðrum kleift að vera með viðvarandi eftirlit, safnað persónulegum gögnum og framkvæmt eyðileggjandi aðgerðir á bandarísku yfirráðasvæði. „Trump forseti hefur verið skýr um að ríkisstjórn hans muni fara í aðgerðir til að vernda lofthelgi okkar frá drónum og auka innlenda framleiðslu á drónum,“ sagði Brendar Carr, formaður stjórnar FCC á samfélagsmiðlinum X. Í júní skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti undir forsetatilskipun um að flýta fyrir markaðssetningu drónatækni og að auka innlenda drónaframleiðslu til að koma í veg fyrir erlenda stjórn eða misnotkun. Enn má festa kaup á drónum sem hafa þegar verið fluttir til landsins og nota þá sem þegar hafa verið keyptir. Ákvörðunin ekki byggð á sönnunargögnum Forsvarsmenn DJI hafa lýst yfir óánægju með ákvörðun Bandaríkjanna en samkvæmt CNN sér fyrirtækið um sjötíu prósent af heimsmarkaðinum þegar kemur að drónasölu. „Áhyggjur af gagnaöryggi DJI hafa ekki verið byggðar á sönnunargögnum og endurspegla heldur verndarstefnu, sem stríðir gegn meginreglum opins markaðar,“ sagði talsmaður DJI. Undanfarið ár hafa forsvarsmenn DJI ítrekað sent bandarískum ráðamönnum bréf, þar á meðal Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Sú vinna virðist hafa borið lítinn árangur.
Bandaríkin Kína Mest lesið Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira