Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Lovísa Arnardóttir skrifar 18. desember 2025 22:18 Atvikið átti sér stað í Reykjanesbæ. Vísir/Vilhelm Halldór Logi Sigurðsson hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, sem hann framdi við heimahús í Reykjanesbæ í sumar. Þar var hann ákærður fyrir að reyna að svipta fjölskylduföður lífi með því að leggja ítrekað til hans með hníf í höfuð, búk og útlim.
Hann var einnig ákærður fyrir líflátshótanir vegna orða sem hann lét falla á sama tíma og manndrápstilraunin átti sér stað. Einnig var hann ákærður fyrir ávana-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Manndrápstilraunin átti sér stað föstudagskvöldið 20. júní. Í ákæru var miklum áverkum sem maðurinn hlaut lýst. Vísir fjallaði um málið í ágúst þar sem fram kom að fórnarlambið hefði verið fjölskyldufaðir sem hefði ætlað að reka manninn á brott. Árásarmaðurinn hefði verið kominn að heimili fjölskyldunnar vegna hlaupahjóls sem sonur föðurins var að gera við. Eldri maðurinn hlaut djúpan skurð á innanverðum hægri framhandlegg og fjölmarga aðra styttri skurði um allan líkamann, svo sem á kvið, eyra, hálsi og fingrum. Hann var fluttur á Landspítalann með hraði með meðvitund. Í dómi kemur fram að áverkar föðursins voru töluverðir. Hann mun hafa hlotið „djúpan skurð á innanverðum hægri framhandlegg, um 10-15 cm langan, ásamt áverka á hægri ölnartaug með kjölfarandi a.m.k. tímabundinni skyn- og hreyfiskerðingu, grunnan skurð á hægri framhandlegg, um 2 cm langan, um 3 cm langan skurð framanvert á hægri öxl sem náði nær inn í handarkrika og sást þar niður í vöðva, 3 cm langan skurð hægra megin á ofanverðum kvið, um 2 cm neðan við bringubein, sem náði í gegnum ysta lag húðar, um 2 cm langan skurð aftan við vinstra eyra, niður frá hnakka og að hálsi og grunnan skurð á utanverðum vísifingri, um 1 cm langan.“ Í dómi kemur fram að tilkynnt hafi verið um að maður væri að brjóta rúður í bílskúr og stuttu siðar um að hann væri að ráðast á mann. Þegar lögregla kom á vettvang tilkynnti sonur mannsins lögreglu að hann hefði hlaupið af vettvangi. Lögregla leitaði að manninum með drónum en fengu svo myndir úr öryggismyndavélum og báru kennsl á hann. Eftir það hóf lögregla leit að honum og ræddu við faðir hans og fundu hann svo á endanaum heima hjá konu sem tilkynnti kögregu við komu að Halldór Logi hefði hótað að drepa mann og konu á heimili hennar. Hann var í kjölfarið handtekinn. Langvarandi vímuefnavandi og geðrofseinkenni Í dómi kemur fram að framvæmd hafi verið geðrannsókn á Halldóri Loga. Í umfjöllun um hana kemur fram að Halldór Logi hafi nokkrum sinnum leitað sér aðstoðar vegna vímuefnavanda og farið í meðferð 2023 og 2024. Í meðferð árið 2024 hafi hann líka verið með geðrofseinkenni. Þar er einnig fjallað um að hann hafi verið lagður inn á geðdeild eftir að meðferð við geðrofseinkennum gekk illa á Litla-Hrauni. Halldór Logi sagðist þó sjálfur vilja vera í fangelsi því þar gæti hann verið áfram í neyslu. Hann sæi fyrir sér að halda því áfram eftir að hann losnar úr fangelsi. Á geðdeild lýsti hann eftirsjá hvað varðar hnífstunguna og að hann hafi ekki ætlað að meiða manninn. Geðlæknir var dómkvaddur til að svara til um sakhæfi ákærða á verknaðarstundu og hvort refsing myndi bera árangur. Í niðurstöðu matsmannsins kom fram að Halldór Logi hefði verið í geðrofi þegar hann réðst að manninum og að það hafi án vafa verið stór þáttur í því hvernig fór. Ástand hans hafi verið litað af langvinnri vímuefnanotkun og geðrof hans megi rekja til þess. Matmaður taldi hann sakhæfan og kemur fram í dómi að í síðasta viðtali hans við Halldór Loga, þann 23. ágúst, hafi ástand hans verið þannig að refsing væri til þess fallin að bera árangur. Hins vegar væri mikilvægt að tryggja edrúmennsku ákærða til að lágmarka líkur á því að brotaferill hans haldi áfram Í umfjöllun um refsingu Halldórs Loga kemur fram að Halldór Logi hafi gengist undir sektargreiðslu árið 2021 fyrir umferðarlagabrot og með dómi Landsréttar í október 2024 hafi ákvörðun um refsingu ákærða verið frestað skilorðsbundið í tvö ár fyrir hlutdeild í minniháttar líkamsárás. Hann hafi því rofið skilorð og vegna þess verði honum gerð refsing fyrir bæði þau brot sem hann er sakfelldur fyrir núna og þau sem hann var á skilorði fyrir. Eigi sér engar málsbætur Fram kemur að hann eigi sér ekki aðrar málsbætur en að hafa viðurkennt brot sín og að ekkert tilefni sé til refsilækkunar. Tilraun til manndráps varði ekki fangelsi skemur en fimm ár og vegna þess að önnur brot ákærða þykja minni háttar telur dómurinn fimm ára refsingu hæfilega. Til frádráttar refsingunni er gæsluvarðhald Halldórs Loga en hann hefur verið í varðhaldi frá því að hann var handtekinn þann 21. júní 2025. Fram kemur í dómi að brotaþoli starfi sem iðnaðarmaður og að hann hafi verið óvinnuvær eftir árásina. Hann hlaut taugaskaða á handlegg og er líklegt að hann hafi hlotið varanlega skaða. Þá er hann einnig með áfallastreituröskun og hefur miklar áhyggjur af því að geta ekki stundað atvinnu sína á ný. Með hliðsjón af afleiðingum af árás ákærða á líkamlega og andlega heilsu brotaþola, þykja miskabætur til hans hæfilega ákveðnar 2.500.000 krónur en Halldóri Loga er gert að greiða brotaþola um 3,3 milljónir alls í bætur en brotaþoli hafði gert kröfu upp á 4,8 milljónir.
Lögreglumál Dómsmál Reykjanesbær Fíkniefnabrot Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fleiri fréttir LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli Sjá meira