Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. desember 2025 14:00 Þorsteinn Leó Gunnarsson fór á sitt fyrsta stórmót síðasta janúar og vonast til að geta endurtekið það með íslenska landsliðinu á HM í næsta mánuði. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Þorsteinn Leó Gunnarsson er að jafna sig af nárameiðslum fyrr en áætlað var og vonast til að geta tekið þátt á Evrópumótinu í janúar með íslenska landsliðinu.
Stærsti strákurinn okkar, hinn 208 sentimetra hái Þorsteinn, meiddist í nára fyrir mánuði síðan í leik með liði sínu Porto gegn Elverum í Evrópudeildinni. Þá var stórmótið strax sett í hættu, því það leit ekki út fyrir að Þorsteinn myndi jafna sig í tæka tíð fyrir EM, en batinn hefur gengið vonum framar. „Staðan er bara þokkalega góð, endurhæfingin hefur gengið mjög vel og ég er á undan áætlun. Eða eins og planið var þá er ég langt á undan áætlun. Þetta átti að taka 10-12 vikur en það eru bara komnar 4 vikur og ég er byrjaður að hlaupa og æfa án snertingar… Ég stefni á að vera heill fyrir janúar og er bara bjartsýnn á það að verða klár fyrir EM“ sagði Þorsteinn. Stíft aðhald hjá læknateymi Porto hefur skilað sér en Þorsteinn þakkar líka góðum genum fyrir þennan skjóta bata. „Ég er búinn að gera allt sem þarf, þó það sé sumt mjög leiðinlegt, að fá einhverjar sprautar í nárann og eitthvað. En eigum við ekki að segja að það sé bara gott læknateymi, sjúkrateymi og góð gen líka kannski, sem hafa látið þetta ganga svona vel.“ Þorsteinn er á leið til Íslands á morgun eftir mikla baráttu við stjórnarmenn Porto, sem vildu ekki hleypa honum heim og vilja helst ekki að hann fari á EM. Nánar verður rætt við kappann í Sportpakka Sýnar í kvöld.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti „Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Besta sætið: Harry Kane þarf að rífa fram markmannshanskana Sport Svona var fundurinn þegar Arnar kynnti vesturfara Fótbolti Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Sport Arnar gagnrýndi Guardiola: „Þú þurftir ekki að eyðileggja allt“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjarnan - Fram | Heimakonur róa lífróður „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag Sjá meira