Tuttugu og fimm fórust þegar skemmtistaður brann til kaldra kola Agnar Már Másson skrifar 7. desember 2025 08:52 Skemmtistaðurinn var rústin ein í morgun eftir að hafa orðið eldi að bráð. Skemmtistaðurinn er í þorpinu Arpora í fylkinu Góu á miðvesturströnd Indlands. AP Hið minnsta 25 fórust í stórum eldsvoða á skemmtistað í fylkinu Góa á Indlandi í nótt að sögn viðbragðsaðila. Um sex manns eru slasaðir og skemmtistaðurinn brann til kaldra kola.
Pramod Sawant, æðsti ráðherra fylkisins, greindi frá því að 25 hefðu látið lífið þegar eldur kviknaði upp úr miðnætti á skemmtistaðnum Birch by Romeo Lane í þorpinu Arpora í fylkinu Góa við vesturströnd landsins. Þorri látinna er eldhússtarfsfólk á skemmtistaðnum en einnig létust fjórir ferðamenn að sögn ráðherrans. Sex manns eru slasaðir en ástand þeirra er stöðugt, sagði Sawant. Öll lík eru fundin. Fréttaveitan Press Trust of India hefur eftir lögreglu að sprenging í gaskút hafi valdið eldsvoðanum og að tekist hafi að slökkva eldinn. Aftur á móti hefur sami miðill eftir sjónarvottum að eldurinn hafi byrjað á fyrstu hæð, þar sem gestir dönsuðu, og að um hundrað manns hafi verið á dansgólfinu þegar eldurinn braust út. Margir hafi flúið inn í eldhúsið og fests þar inni ásamt starfsmönnum. „Við drifum okkur út af staðnum og sáum þá að öll byggingin væri í ljósum logum,“ segir sjónarvotturinn Fatima Shaikh við Press Trust of India. Aðkoman að skemmtistaðnum var afar þröng en hann er staðsettur við Aporaá. Slökkviliðsmenn þurftu því að leggja tankbílum sínum í 400 metra fjarlægð frá eldsvoðanum. Indverski miðillinn hefur eftir viðbragðsaðilum að þetta hafi tafið slökkvistarfið verulega. Þorpið er 25 kílómetrum frá höfuðborg fylkisins Panaji en fylkið Goa er minnsta fylki landsins og afar vinsæll ferðamannastaður.
Indland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira