McLaren ætlar að nota heilbrigða skynsemi í ákvörðunum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2025 23:00 Þeir félagar hjá McLaren, Lando Norris og Oscar Piastri, leiða keppni ökumanna en ríkjandi heimsmeistari er skammt undan. Forráðamenn McLaren segjast vera tilbúnir að nota Oscar Piastri til að hjálpa Lando Norris í titilbaráttunni í formúlu 1 ef kemur að því í Abú Dabí-kappakstrinum að Ástralinn geti ekki lengur unnið heimsmeistaratitilinn. Það er mikil spenna fyrir helgina enda geta þrír tryggt sér heimsmeistaratitilinn í síðustu keppni tímabilsins.
McLaren hefur fylgt þeirri stefnu að leyfa frjálsa samkeppni milli ökumanna sinna í ár, staðráðið í að gefa báðum besta mögulega tækifæri til að vinna sinn fyrsta titil. En Norris hefur sextán stiga forskot á Piastri fyrir síðustu keppni tímabilsins á Yas Marina, með Max Verstappen úr Red Bull á milli þeirra, tólf stigum á eftir Bretanum. „Svo lengi sem báðir ökumenn eiga möguleika á að vinna titilinn, þá er allt með hefðbundnum hætti og þeim er frjálst að keppa,“ sagði Zak Brown, forstjóri hjá McLaren-liðinu. „Ef það kemur í ljós í keppninni að báðir geta það ekki, munum við gera það sem við getum til að tryggja að liðið vinni heimsmeistaratitil ökumanna,“ sagði Brown. „Við munum nota heilbrigða skynsemi, við ætlum ekki að kasta heimsmeistaratitli ökumanna á glæ fyrir fimmta og sjötta sæti eða hvað sem er ef annar ökumannanna á ekki möguleika,“ sagði Brown. Það eru ýmsar tölfræðilegar aðstæður þar sem Piastri gæti komið í veg fyrir að Verstappen tæki titilinn með því að gefa Norris sæti. Líklegasta atburðarásin þar sem þetta gæti gerst er ef Verstappen er að vinna keppnina, Piastri er í einu af þremur efstu sætunum og Norris er í fjórða sæti. Ef Verstappen vinnur þarf Norris að vera í þriðja sæti til að tryggja sér titilinn. Í þeim aðstæðum, eða öðrum álíka, er ljóst að McLaren myndi biðja Piastri um að gefa Norris sæti sitt. Önnur atburðarás væri ef Norris væri í áttunda sæti, Verstappen í öðru og Piastri einhvers staðar á milli þeirra. Brown sagðist vera viss um að Piastri myndi samþykkja beiðnina. „Ökumenn okkar hafa alltaf farið eftir óskum liðsins, rétt eins og við förum eftir þeirra óskum,“ sagði Brown. „Þannig að ég efast ekki um að hvor ökumaður okkar sem er muni halda áfram að keppa eins og þeir hafa gert frábærlega í þágu liðsins,“ sagði Brown. Á fimmtudaginn sagði Lando Norris að hann myndi ekki biðja um þetta sjálfur „því mér finnst það ekki endilega sanngjörn spurning,“ sagði Norris.
Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Enski boltinn Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Handbolti Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Handbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Fótbolti Fleiri fréttir Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira