Heiða frá meisturunum til nýliða í Svíþjóð Sindri Sverrisson skrifar 2. desember 2025 11:25 Heiða Ragney Viðarsdóttir með boltann gegn FH í haust, rétt áður en Blikakonur fengu Íslandsmeistaraskjöldinn afhentan. vísir/Anton Heiða Ragney Viðarsdóttir, miðjumaður Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks í fótbolta, hefur samið við sænska félagið Eskilstuna United til næstu tveggja ára.
Eskilstuna vann næstefstu deild Svíþjóðar á síðustu leiktíð og snýr þar með aftur upp í úrvalsdeildina. Heiða Ragney spilar því í deildinni sem að þjálfari hennar hjá Breiðabliki síðustu tvö ár, Nik Chamberlain, mun einnig starfa í sem þjálfari Kristianstad. Þau skilja við Breiðablik í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins eftir magnaða frammistöðu gegn Fortuna Hjörring frá Danmörku í 16-liða úrslitunum, og ljóst að Heiða getur litið afar stolt til baka á árið sem er senn á enda. Vill fá tækifæri í landsliðinu „Þetta voru mjög margir leikir og okkur hefur gengið vel í Evrópukeppninni. Við spiluðum síðasta leikinn 19. nóvember en nú tekur við smáhvíld,“ segir Heiða á heimasíðu Eskilstuna. Heiða, sem varð Íslandsmeistari bæði ár sín í Breiðabliki en er uppalin hjá Þór/KA, var á síðasta ári valin í íslenska A-landsliðshópinn fyrir vináttuleiki við Bandaríkin. „Ég fékk engan spilatíma þá en auðvitað dreymir mig um að fá alvöru tækifæri í framtíðinni. Ég held að það að spila í Svíþjóð geti hjálpað mér að taka næsta skref. Ég tel að Damallsvenskan sé mjög góð deild og það verður spennandi að prófa. Ekki síst finnst mér eins og sænsku liðin séu taktískari en þau á Íslandi,“ segir Heiða. Fékk alls staðar góð meðmæli Þjálfarinn Rickard Johansson fagnar því að fá þennan íslenska, varnarsinnaða miðjumann í sinn hóp: „Við vitum að það þarf reynslu til að festa okkur í sessi í efstu deild og við höfum leitað að varnarsinnuðum miðjumanni sem getur varið varnarlínuna okkar, sem er klókur í staðsetningum, góður í einföldum sendingum og einnig sterkur í að vinna boltann, auk þess að hafa reynslu úr efstu deildum og helst Evrópukeppni, og Heiða uppfyllir öll þessi skilyrði. Ég hef séð marga af leikjum hennar, ég hef fengið meðmæli frá bæði fyrrverandi liðsfélögum og landsliðsþjálfurum og allir segja það sama, að Heiða hafi verið einn af bestu miðjumönnum deildarinnar undanfarin tímabil, svo það verður mjög spennandi að sjá hana í United. Heiða eykur einnig reynsluna sem við höfum þegar í hópnum og það verður dýrmætt fyrir okkur sem nýliða árið 2026,“ segir Johansson.
Sænski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira