Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. desember 2025 12:00 Loji Höskuldsson er hönnuður Kærleikskúlunnar. Vísir/Vilhelm Kærleikskúlan hefur í 22 ár verið órjúfanlegur hluti af jólahefð margra en í byrjun desember á hverju ári er staðið að útgáfu til styrktar Gló stuðningsfélagi. Tilgangurinn með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, með því að efla starfsemi Reykjadals sem félagið á og rekur.
Kærleikskúlan 2025 var formlega afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur í dag og stendur sala hennar til 23. desember. Halda þræði eftir Loja Höskuldsson er Kærleikskúla ársins 2025 en verk Loja, sem fæddur er árið 1987, eru mjög svo eftirsótt. Loji Höskuldsson er þekktur fyrir frumleg útsaumsverk sem bera með sér sakleysislegan húmor og milda nostalgíu. Hann sameinar hefðbundnar og tilraunakenndar aðferðir í hægfara handverksferli og sækir viðfangsefni sín í hversdagsleikann. Loji Höskuldsson er hönnuður Kærleikskúlunnar.Aðsend Í fréttatilkynningu segir: „Gló Stuðningsfélag, áður Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003. Kærleikskúlan sem gefin er út í takmörkuðu upplagi hefur fengið frábærar viðtökur landsmanna í gegnum árin og er árleg útgáfa hennar orðin hluti af jólahefð margra. Tilgangurinn með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, með því að efla starfsemi Reykjadals sem félagið á og rekur. Reykjadalur hefur frá 1963 verið vettvangur tómstunda og vináttu fyrir fötluð börn og ungmenni. Sumarbúðirnar voru stofnaðar af félaginu sem svar við brýnni þörf um tækifæri fatlaðra barna til þátttöku og hafa í gegnum árin þróast og eflst og gestahópurinn stækkað og orðið fjölbreyttari. Markmið Reykjadals er að bjóða uppá uppbyggjandi og jákvæða upplifun þar sem hver og einn fær að njóta sín á eigin forsendum. Áhersla er lögð á að styrkja og stuðla að vinatengslum með því að skapa ævintýri og skemmtilegan frítíma. Kraftmikið starfsfólk gerir hverja dvöl einstaka og ógleymanlega.“ Hér má lesa texta listamannsins um kúluna sem heitir Halda þræði: „Eini endinn sem gefur eftir er yst, en hinn liggur í hjarta hnykilsins og er aðeins aðgengilegur með því að vefja sig í gegnum allt ferðalagið. Markmið ferðalagsins er að forðast flækjur en þær eru þó nánast óumflýjanlegar, sérstaklega ef maður tapar þræðinum á leiðinni. Ferðalag hvers hnykils er einstakt, því enginn vefur sinn hnykil á nákvæmlega sama hátt. Það sem fyrir einum virðist auðvelt, getur reynst öðrum snúið. Ferðalagið krefst þolinmæði og elju, það er ekki ætlað þeim sem vilja skjót svör eða styttri leiðir. Ólíkt daglegu amstri, þar sem athyglin slitnar í allar áttir, býður hnykillinn aðeins einn lausan enda. Sá endi er stöðug uppspretta hlýju, hugmynda og möguleika. Það er þar sem allt byrjar.“ Hér má nálgast nánari upplýsingar um Kærleikskúluna.
Menning Myndlist Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira